Irving og Rubio bestu nýliðarnir í NBA í janúarmánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2012 13:00 Ricky Rubio. Mynd/AP
Kyrie Irving hjá Cleveland Cavaliers og Ricky Rubio hjá Minnesota Timberwolves voru valdir bestu nýliðarnir í janúarmánuði í NBA-deildinni í körfubolta. Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls og Scott Brooks, þjálfari Oklahoma City Thunder voru valdir bestu þjálfararnir. Hér er verið að tala um fyrsta rúma mánuðinn á tímabilinu því leikirnir í lok desember teljast einnig með. Kyrie Irving hjá Cleveland Cavaliers stóð sig best allra nýliða í Austurdeildinni en enginn nýliðanna skoraði meira en hann eða 18,1 stig að meðaltali í leik. Irving var einnig með 4,9 stoðsendingar í leik og 51,1 prósent skotnýtingu. Hann nýtt 41 prósent þriggja stiga skota sinna. Ricky Rubio hjá Minnesota Timberwolves stóðs sig best af nýliðum Vesturdeildarinnar. Rubio gaf flestar stoðsendingar af nýliðunum eða 8,9 að meðaltali í leik en hann var einnig með 11,4 stig og 2,24 stolna bolta að meðaltali. Aðrir nýliðar sem komu til greina voru: Brandon Knight hjá Detroit, Chandler Parsons hjá Houston, Norris Cole hjá Miami, MarShon Brooks hjá New Jersey og Markieff Morris hjá Phoenix. Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls, var valinn besti þjálfarinn í Austurdeildinni. Chicago Bulls náði bestum árangri allra liða í Austurdeildinni frá 25. desember til 31. janúar en liðið vann þá 18 af 23 leikjum sínum. Liðið vann 13 af 18 leikjum sínum með tíu stigum eða meira. Scott Brooks, þjálfari Oklahoma City Thunder, var valinn besti þjálfarinn í Vesturdeildinni. Ekkert lið í allri deildinni náði betri árangri en Thunder vann 16 af fyrstu 20 leikjum sínum.
NBA Mest lesið Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Handbolti Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu Körfubolti „Það er komin pressa“ Körfubolti Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Sport „Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Sport Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Einum sigurleik frá Bónus deildinni Óskar hættur en verður seint fullþakkað Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Kunni betur á moppuna og fagnaði sigri „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ „Það er karakter í þessu liði“ Sjá meira