Viðskipti erlent

Nokkrar vikur í iPad 3

iPad spjaldtölvan er vinsælasta spjaldtölva heims.
iPad spjaldtölvan er vinsælasta spjaldtölva heims.
Gert er ráð fyrir að tölvurisinn Apple kynni nýja kynslóð af iPad-spjaldtölvunni í byrjun næsta mánaðar. Talið er að upplausnin á skjánum á iPad 3 verði 2048 x 1536 og að örgjörvinn verði töluvert harðvirkari.

Fullyrt er að Apple hafi boðað til blaðamannafundar í næsta mánuði. En fyrirtækið gefur aldrei upp hvaða vara er kynnt á fundinum. En tölvuspekingar telja fullvíst að það verði iPad 3 sem verður kynntur til sögunnar.

Upphaflega var talið að iPad 3 kæmi út í mars eða júní á þessu ári en nú er ljóst að Apple mun flýta útgáfunni. Samkvæmt Richard Gardner, greinanda hjá Citigroup, er ástæðan fyrir þessu sú að Apple vill skáka öðrum spjaldtölvuframleiðendum. Með því að flýta framleiðslu og útgáfu iPad 3 mun Apple geta lækkað verðmiðann á iPad 2 og vonandi lokkað hugsanlega kaupendur frá öðrum ódýrum spjaldtölvum.

Talsvert hefur dregið úr vinsældum iPad 2 eftir að vefverslunarrisinn Amazon gaf út spjaldtölvu sína, Kindle Fire, en hún er mun ódýrari en spjaldtölva Apple.

Annar tölvurisi, Samsung, kynnti spjaldtölvu sína, Galaxy Tap 2, í gær en talið er að sú spjaldtölva sé líklegust til að veita Apple samkeppni á þessum markaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×