NBA í nótt: Naumur sigur Lakers á Boston Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. febrúar 2012 09:00 Metta World Peace reynir að verjast Paul Peirce í leiknum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers vann í nótt eins stigs sigur á Boston Celtics í NBA-deildinni, 87-88, í framlengdri viðureign. Alls fóru fjórir leikir fram í nótt. Lakers hefur átt erfitt uppdráttar á útivelli en vann í nótt góðan sigur á sterku liði Boston sem hafði unnið níu af síðustu tíu leikjum sínum í deildinni - þar af fimm í röð. Paul Pierce fékk opið skotfæri í lok framlengingarinnar en skot hans geigaði. Ray Allen reyndi að blaka frákastinu í körfuna en Pau Gasol, miðherji Lakers, náði að verja skotið. Kobe Bryant skoraði 27 stig fyrir Lakers og Gasol var með 25 stig og fjórtán fráköst. Allen skoraði 22 stig og Kevin Garnett var með tólf stig og tólf fráköst. Sacramento vann heldur óvæntan sigur á Oklahoma City, 106-101, en síðarnefnda liðið var með bestan árangur allra liða í deildinni fyrir leikinn. Chicago er nú með besta sigurhlutfallið. Oklahoma City komst í átta stiga forystu í fjórða leikhluta en glutraði henni niður. Russell Westbrook skoraði 33 stig fyrir liðið og Kevin Durant 27. Stigahæstur hjá Sacramento var Tyreke Evans með 22 stig. Golden State vann Denver, 109-101. Stephen Curry var sjóðheitur í leiknum og skoraði 36 stig en þetta var fimmta tap Denver í röð og er það lengsta taphrina liðsins í fimm ár. Houston vann Phoenix, 96-89, þar sem mestu munaði um framlag varamannanna. Houston fékk 57 stig af bekknum en Phoenix aðeins þrettán.Úrslit næturinnar: Boston - LA Lakers 87-88 Denver - Golden State 101-109 Phoenix - Houston 89-96 Sacramento - Oklahoma City 106-101
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira