Viðskipti erlent

Nýr iPad fær góðar viðtökur

Sérfræðingar eru almennt sáttir með spjaldtölvuna.
Sérfræðingar eru almennt sáttir með spjaldtölvuna. mynd/AFP
Sérfræðingar hafa nú fengið sólarhring til að kynna sér nýju iPad spjaldtölvuna frá Apple. Flestir eru sammála um að Apple hafi unnið mikið þrekvirki með hönnun spjaldtölvunnar.

Tim Cook, forstjóri Apple, opinberaði spjaldtölvuna í gær. Á meðal þeirra nýjunga sem spjaldtölvan býr yfir er háskerpuskjár, fimm megapixla myndavél og mun öflugari örgjörvi.

Sérfræðingar eru almennt sáttir með spjaldtölvuna.

MG Siegler, dálkahöfundur hjá tæknifréttasíðunni TechCrunch, er afar ánægður með hinn nýja iPad. „Í fyrstu sá ég varla mun á nýja iPad og þeim gamla," sagði Siegler. „En þegar maður handleikur spjaldtölvuna þá er ljóst að um mikla breytingu er um að ræða. Sá nýi er bæði stærri og þyngri en munurinn liggur í skjánum sem er með ólíkingum fallegur."

Siegler sagði að myndavél spjaldtölvunnar nýju sé einnig margfalt betri en á iPad 2.

Darren Murph, ritstjóri vefsíðunnar Engadget, var einnig hrifinn af spjaldtölvunni. „Þegar maður kveikir á nýja iPad er það ekki spjaldtölvan sjálf sem heillar mann, heldur skjárinn," sagði Muprh. „Þetta minnti mig á þegar ég sá iPhone 4 í fyrsta sinn."






Tengdar fréttir

Nýja útgáfan af iPad er miklu betri - 4G net og betri skjár

Apple kynnti nú síðdegis nýjan iPad og er gert ráð fyrir að hann komi í verslanir þann 16. mars næstkomandi. Tim Cook, forstjóri tölvurisans, segir að nýja útgáfán verði á sama verði og iPad 2 sem kom út í apríl á síðasta árið. Nýr iPad var ekki það eina sem kynnt var á blaðamannafundinum í dag því Apple ætlar að gefa út nýja útgáfu af Apple TV, sem hefur verið vinsælt hjá notendum til að ná í til dæmis sjónvarpsþætti og kvikmyndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×