Viðskipti erlent

Þriggja ára gamall kjúklingabiti seldur á milljón á eBay

Þriggja ára gamall McNugget kjúklingabiti hefur verið seldur á uppboði á eBay fyrir rúmlega 8.000 dollara eða um eina milljón króna.

Ástæðan fyrir þessu háa verði er að kjúklingabitinn þykir sláandi líkur George Washington fyrsta forseta Bandaríkjanna.

Það var kona í Nebraska sem átti kjúklingabitann en hann var keyptur á McDonald stað árið 2009 og hefur verið í geymslu í frystinum hennar síðan. Ástæðan fyrir því að konan seldi kjúklingabitann var að hana skorti fé til að senda börn sín í sumarbúðir í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×