Margrét Lára og félagar í undanúrslit Meistaradeildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2012 12:54 Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Stefán
Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar hennar í þýska liðinu Turbine Potsdam tryggðu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í dag með 3-0 útisigri á rússneska liðinu Rossiyanka í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum keppninnar. Turbine Potsdam vann fyrri leikinn 2-0 og þar með samanlagt 5-0. Margrét Lára kom inn á sem varamaður á 71. mínútu leiksins en hún leysti þá af Patriciu Hanebeck. Margrét var nálægt því að skora á 74. mínútu og lagði síðan upp gott færi fyrir sænsku stelpuna Antoniu Göransson á 86. mínútu en Rússarnir björguðu á línu. Japanska landsliðskonan Yuki Nagasato skoraði tvö mörk en fyrsta mark liðsins skoraði Þýska landsliðskonan Babett Peter. Turbine Potsdam gerði í raun út um einvígið með því að skora tvö mörk á síðustu fimm mínútum fyrri hálfleiksins. Þetta er þriðja árið í röð sem Turbine Potsdam kemst svona langt í Meistaradeildinni en undanfarin tvö tímabil hefur liðið spilað til úrslita. Turbine Potsdam varð meistari 2010 og síðan í öðru sæti í fyrra. Nú er orðið ljóst hvaða fjögur lið komust í undanúrslitin í ár. Turbine Potsdam mætir franska liðinu Lyon í undanúrslitunum en þessi lið hafa mæst í úrslitaleiknum undanfarin tvö ár. Í hinum leiknum mætast enska liðið Arsenal og þýska liðið FFC Frankfurt.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira