New York tapar ekki undir stjórn Woodson | Lakers tapaði 21. mars 2012 09:00 Jeremy Lin lék vel fyrir New York gegn Toronto í nótt. AP
New York landaði góðum sigri, 106-87, á útivelli gegn Toronto í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Lakers tapaði með þriggja stiga mun 107-104 á útivell gegn Houston. Meistaraefnin í Miami Heat lögðu Phoenix á heimvelli 99-96. Alls fóru sjö leikir fram í nótt í deildinni. Amar'e Stoudemire skoraði 22 stig og tók 12 fráköst fyrir New York sem hefur ekki tapað leik undir stjórn nýja þjálfarans Mike Woodson. Jeremy Lin náði sér vel á strik og skoraði 18 stig og gaf 10 stoðsendingar í liði New York. Carmelo Anthony skoraði 17 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Chris Bosh skoraði 29 stig og tók 8 fráköst fyrir Miami sem vann sinn 14. heimaleik í röð. Lokatölur gegn Phoenix, 99-95. LeBron James skoraði 20 stig, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Dwyane Wade skoraði 19 stig fyrir heimamenn. Grant Hill skoraði 19 stig fyrir Phooenix og Steve Nash skoraði 9 stig og gaf 10 stoðsendingar. Goran Dragic fór á kostum í liði Houston í 107-104 sigri liðsins gegn LA Lakers. Hann skoraði 16 stig og gaf 13 stoðsendingar og hann tók 7 fráköst. Luis Scola og Courtney Lee skoruðu 23 stig hvor fyrir heimamenn. Kobe Bryant var stigahæsti leikmaður vallarins en hann skoraði 29 stig fyrir Lakers en hann hitti aðeins úr 10 af alls 27 skotum sínum utan af velli. Þetta var annar tapleikur í röð hjá Lakers. Pau Gasol skoraði 21 stig fyrir Lakers og Andrew Bynum skoraði 16 en honum var vísað út úr húsi í þriðja leikhluta eftir að hann fékk sína aðra tæknivillu. Indiana – LA Clippers 102-89 Toronto – New York 87 – 106 Miami – Phoenix 99-95 Houston – LA Lakers 107-104 Utah – Oklahoma 97-90 Portland - Milwaukee 87-116 Sacramento - Memphis 119-110
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira