Viðskipti erlent

Efnahagur EVE Online verður fyrir árás á morgun

Það er bandalagið Goonswarm sem stendur að baki árásinni en hún hefur fengið heitið "Burn Jita."
Það er bandalagið Goonswarm sem stendur að baki árásinni en hún hefur fengið heitið "Burn Jita." mynd/CCP
Spilarabandalag í EVE Online tölvuleikjaheiminum mun gera atlögu að efnahag leiksins á morgun. Stjórnendur EVE hrósa hins vegar spilurunum fyrir áætlunina.

Það er bandalagið Goonswarm sem stendur að baki árásinni en hún hefur fengið heitið „Burn Jita" - Jita er eitt fjölsóttasta sólkerfi EVE Online og þar fer stór hluti viðskipta fram.

Það er hinn óttalausi leiðtogi Goonswarm, Alexander Gianturco (einnig þekktur sem „The Mittani"), sem skipuleggur árásina.

Orrustan verður vafalaust tilkomumikil en um 14 þúsund spilarar munu taka þátt í henni. Samkvæmt tölvuleikjavefsíðunni Eurogamer á árásin að hefjast á morgun en hún gæti allt eins hafa byrjað fyrr í dag.

mynd/CCP
Stjórnendur EVE Online eru þó rólegir. Einn af hönnuðum EVE, Kristoffer Touborg, sagði í dag að árásin væri nákvæmlega það sem tölvuleikurinn væri hannaður fyrir - hópefli og samstarf spilara, ásamt beinskeyttum vilja til að sigra.

„Þetta er nákvæmlega það sem gerir EVE Online að svo góðum tölvuleik," sagði Touborg. „Hvort vilt þú spila 15 mínútna skotbardaga í Call of Duty eða eyða fjórum mánuðum í safna 14 þúsund leikmönnum og vinum til að bylta innviðum tölvuleiksins sjálfs."

Þá sagði Touborg að árásin gæti í raun haft jákvæðar afleiðingar fyrir efnahag EVE Online. Þúsundir spilara munu glata vistum og geimskipum (og ærunni auðvitað) og þurfa um hæl að fjárfesta í nýjum búnaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×