Viðskipti erlent

Spánn í djúpri kreppu - neikvæður hagvöxtur

Frá Spáni. Ferðaþjónusta er stærsti atvinnuvegur Spánar.
Frá Spáni. Ferðaþjónusta er stærsti atvinnuvegur Spánar.
Spænska hagkerfið dróst saman um 0,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er í takt við væntingar sérfræðinga, en spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gerir ráð fyrir að hagkerfi Spánar muni minnka um 1,8 prósent á þessu ári.

Samkvæmt tölum sem hagstofa Spánar birti í morgun, er atvinnuleysið tæplega 25 prósent, og atvinnuleysi meðal fólks á aldrinum 18 til 30 ára er ríflega 50 prósent.

Stjórnvöld á Spáni reyna nú hvað þau geta til þess að rétta af slæman rekstur ríkissjóðs, en miklar skuldir eru að sliga ríkissjóð landsins. Niðurskurður ríkisútgjalda er framundan en þau áform hafa mætt mikilli andstöðu, einkum hjá verkalýðsfélögum.

Samkvæmt frétt sem birtist í Financial Times í dag, er nú unnið að því að endurskipuleggja fjármálakerfi Spánar, en hugmyndir hafa komið fram um að setja á fót sérstakan sjóð sem tekur yfir versta hluta lánasafnsins í fjármálakerfinu. Þessar hugmyndir hafa þó ekki endanlega verið útfærðar, en búist er við því að ríkissjóður Spánar muni hafa yfirumsjón með sjóðnum sem tekur „slæmu" lánin yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×