Nammigræðgi starfsfélaganna spillir oft góðu plani 4. maí 2012 17:00 Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka
Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka leggur mikið upp úr góðri heilsu og hollu fæði. Lífið forvitnaðist aðeins um mataræði hennar. Ég reyni eftir fremsta megni að borða hollan og góðan mat. Nammigræðgi samstarfsfélaga minna spillir reyndar stundum því góða plani sem ég legg upp með á morgnana. Ég kenni þeim að sjálfsögðu um allt sem miður fer í hollustunni. Mér finnst rosalega gott að fá mér sjeik á morgnana þar sem ég er yfirleitt frekar lystalítil í upphafi dags.Grænbrúnt jukk Í uppáhaldssjeiknum mínum er spínat, engifer, banani, brómber, mango, lucuma, haframjöl og smá skvetta af appelsínusafa. Úr þessu verður til grænbrúnt jukk sem er þó alveg himneskt á bragðið. Yfirleitt borða ég mikið af grænmeti, kjúklingi og fiski. Mér finnst gaman að elda og prófa nýjar uppskriftir en nýjasta æðið mitt er að hægelda mat. Með þeim hætti varðveitir maður betur næringuna í matnum fyrir utan að allt sem kemur upp úr þessum potti er sjúklega gott.Hollt nesti í golfið Ég er svo búin að lofa mér því að vera dugleg að grípa með mér hollt nesti á golfvöllinn en ég á það til að grípa næstum það sem hendi er næst þegar ég er orðin svöng úti á velli.
Boozt Morgunmatur Uppskriftir Mest lesið Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Lífið samstarf „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist