Viðskipti erlent

Siðareglur kosta norska olíusjóðinn hundruð milljarða

Strangar siðareglur norska olíusjóðsins hafa kostað hann hundruð milljarða króna á undanförnum árum.

Siðareglur þessar þykja ómarkvissar og óljósar og margir efast um að þær þjóni nokkrum tilgangi. Reglurnar banna sjóðnum m.a. að fjárfesta í vopnaframleiðslu og tóbaksfyrirtækjum svo dæmi séu tekin.

Í umfjöllun um reglurnar á vefsíðu Finansavisen kemur fram að frá árinu 2005 hafi olíusjóðurinn tapað nær 11 milljörðum norskra króna eða um 240 milljörðum króna vegna þess að sjóðurinn má ekki fjárfesta í hverju sem er. Sem stendur eru 55 alþjóðleg fyrirtæki á bannlista sjóðsins.

Finansavisen segir að það sé fáránlegt að olíusjóðurinn megi ekki fjárfesta í vopnaframleiðandanum Lockheed Martin á sama tíma og norska ríkið er að kaupa herþotur frá því fyrirtæki. Olíusjóðurinn má heldur ekki fjárfesta í tóbaksfyrirtækjum en norska ríkið hefur miklar tekjur af sölu tóbaks.

Þá er bent á að ekki finnst eitt einasta dæmi um að siðareglur olíusjóðsins hafi breytt heiminum til hins betra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×