Þjálfari meistaraliðs Juventus yfirheyrður af lögreglu 28. maí 2012 10:00 Antonio Conte þjálfari Juventus. AP
Ítalska lögreglan hefur handtekið fyrirliða fótboltaliðsins Lazio, Stefano Mauri og Omar Milanetto fyrrum leikmann Genoa vegna gruns um að þeir hafi tekið þátt í að hagræða úrslitum í leikjum í ítalska fótboltanum. Þjálfari Ítalíumeistaraliðs Juventus, Antonio Conte, var yfirheyrður af lögreglunni í tengslum við þetta mál samkvæmt frétt Reuters. Í tilkynningu lögreglur segir að fimm manns hafi verið handteknir í Ungverjalandi. Málið sem er í rannsókn tengist einnig Tan Seet Eng frá Singapúr sem handtekin var í desember s.l. vegna gruns um viðamikið veðmálabrask tengt úrslitum í fótbolta víðsvegar um heim. Lögreglan í Cremona á Ítalíu hefur handtekið 19 manns í tengslum við þessa rannsókn og yfirheyrt fjölmarga aðila. Conte, þjálfari Juventus, er einn af þeim sem var yfirheyrður en hann fagnaði nýverið sigri í ítölsku deildinni. Juventus var dæmt niður um deild árið 2006 eftir að upp komst um forsvarsmenn félagsins – sem höfðu greitt dómurum háar fjárhæðir til þess að hafa áhrif á úrslit leikja. Húsleit var gerð hjá fjölda leikmanna, starfsmanna og þjálfara hjá liðum í tveimur efstu deildunum á Ítalíu. Málið tengist öðru máli sem er til rannsóknar hjá ítölsku lögreglunni. Þar eru úrslit úr leikum Lazio og Genoa á tímabilinu 2010-2011 til rannsóknar, sem og úr leik Lecce og Lazio sama ár.
Ítalski boltinn Mest lesið Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Sjá meira