Fótbolti

Stefnir allt í úrslitaleik Íslands og Noregs um efsta sætið

Dóra María Lárusdóttir sýnir takta á Laugardalsvellinum í gær gegn Ungverjum.
Dóra María Lárusdóttir sýnir takta á Laugardalsvellinum í gær gegn Ungverjum. Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í efsta sæti 3. riðils í undankeppni Evrópumótsins eftir 3-0 sigur gegn Ungverjum í gær. Ísland er með 16 stig að loknum 7 leikjum en Norðmenn eru með 15 stig eftir 11-0 stórsigur í gær gegn liði Búlgaríu sem er í neðsta sæti án stiga eftir 8 leiki. Efsta liðið kemst beint í úrslitakeppnina sem fram fer í Svíþjóð sumarið 2013.

Norska liðið lék sér að því búlgarska í Sarpsborg í gær. Isabell Herlovsen skoraði fyrsta markið strax á 8. mín og þar með var ísinn brotinn. Norðmenn bættu við mörkum á 12., 22., 30., 34., 47., 49., 78., 79. og 83. mín. Noregur tapaði fyrstu tveimur leikjunum í riðlakeppninni og þar á meðal gegn Íslandi. Svo gæti farið að liðin mætist í hreinum úrslitaleik í Sarpsborg um efsta sætið þann 19. sept.

Næstu leikir Íslands í riðlinum eru:

Búlgaría – Ísland, 21. júní.

Ísland – Norður-Írland, 15. sept.

Noregur – Ísland, 19. sept.

Staðan í riðlinum er þessi:

Ísland 7 leikir – 16 stig

Noregur 7 leikir – 15 stig

Belgía 7 leikir – 14 stig

Norður-Írland 7 leikir – 11 stig

Ungverjaland 8 leikir – 7 stig

Búlgaría 8 leikir – 0 stig






Fleiri fréttir

Sjá meira


×