Miami í úrslitin annað árið í röð - Boston-liðið bensínslaust í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2012 09:00 Mynd/AP
Miami Heat er komið í úrslitaeinvígið um NBA-titilinn eftir 13 stiga sigur á Boston Celtics, 101-88, í oddaleik í Miami í nótt í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar. Miami mætir Oklahoma City Thunder í lokaúrslitunum og fyrsti leikurinn er á þriðjudagskvöldið. Miami Heat er komið í úrslitaeinvígið annað árið í röð en liðið tapaði fyrir Dallas Mavericks í lokaúrslitunum í fyrra. LeBron James hitti ekki eins vel og í leik sex en var engu að síður með 31 stig og 12 fráköst. Dwyane Wade var með 23 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar og Chris Bosh kom með 19 stig og 8 fráköst af bekknum. Bosh var að margra mati mikilvægasti leikmaður leiksins því framlag hans vóg þungt. Rajon Rondo var með þrefalda tvennu, 22 stig, 10 fráköst og 14 stoðsendingar, en það dugði ekki til. Paul Pierce skoraði 19 stig og Brandon Bass var með 16 stig. Þetta var líklega síðasti leikur liðsins með alla þá þrjá stóru innanborðs, Kevin Garnett, Ray Allen og Pierce. Boston-liðið var í góðum gír í fyrri hálfleik og skipti þar engu þótt að liðið missti Kevin Garnett í villuvandræði snemma í öðrum leikhluta. Brandon Bass (14 stig), Paul Pierce (13 stig) og Ray Allen (12 stig) fóru á kostum í hálfleiknum og Rajon Rondo stjórnaði umferðinni og gaf 10 stoðsendingar. Boston náði mest ellefu stiga forskoti og var sjö stigum yfir í hálfleik, 53-46. Miami skoraði 13 af fyrstu 19 stigum seinni hálfleiks og var búið að jafna í 59-59 eftir aðeins tæpar fimm mínútur. Liðin skiptust síðan að hafa forystuna en staðan var 73-73 fyrir lokaleikhlutann. Rajon Rondo hélt Boston inn í leiknum með því að skora 10 stig í leikhlutanum. Miami byrjaði fjórða leikhlutann vel og fljótlega kom í ljós að Boston-liðið var bensínlaust enda að fá framlög hjá fáum leikmönnum. Miami vann fjórða leikhlutann 28-15 og þar með leikinn með þrettán stigum.
NBA Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira