Fótbolti

Borgunarbikarkeppnin: KR sækir Grindavík heim | Stjarnan fékk Þrótt

Óskar Örn Hauksson leikmaður KR skorar hér í 4-1 sigurleik KR gegn Grindavík á dögunum.
Óskar Örn Hauksson leikmaður KR skorar hér í 4-1 sigurleik KR gegn Grindavík á dögunum. Daníel
Stjarnan og 1. deildarlið Þróttar eigast við í undaúrslitum Borgunarbikarkeppninnar í karlaflokki, og Grindavík fær bikarmeistaralið KR í heimsókn. Dregið var í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ. Fyrst var dregið um hvaða lið fengu heimaleiki og komu Stjarnan og Grindavík upp fyrst. Undanúrslitaleikirnir fara fram 1. og 2. ágúst.

KR hafði betur gegn Þór frá Akureyri í úrslitum keppninnar í fyrra, 2-0.

Nánar verður fjallað um bikardráttinn síðar í dag á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×