Lífið

Glæsilegur afmælispakki

Trausti Júlíusson skrifar
Það eru 10 diskar og bók í Philadelphia International-pakkanum
Það eru 10 diskar og bók í Philadelphia International-pakkanum
Þeir Kenneth Gamble og Leon Huff stofnuðu Philadelphia International plötufyrirtækið árið 1971 í Fíladelfíuborg. Það naut mikillar velgengni á áttunda áratugnum og í upphafi þess níunda. Þekktustu tónlistarmennirnir hjá PI voru The O'Jays, Billy Paul, Harold Melvin and the Blue Notes og Lou Rawls, en fjölmargir aðrir voru á mála hjá fyrirtækinu. PI var mikilvægasta sálartónlistarútgáfa áttunda áratugarins. Hún starfaði í svipuðum anda og Motown og Stax gerðu á sjöunda áratugnum, en tónlistin var fágaðri og meira fínpússuð útgáfa af sálartónlist með mikilli áherslu á strengjaútsetningar. Hún hafði mikil áhrif á popptónlistarhljóm áttunda áratugarins, diskóið og danstónlistina.

Mikill meirihluti tónlistar PI var tekin upp í Sigma Sound-hljóðverinu og eins og Motown og Stax hafði PI húshljómsveit sem spilaði undir hjá hinum ýmsu listamönnum útgáfunnar. Það var M.F.S.B. (Mother Father Sister Brother), sem einnig gaf út eigin plötur sem margar náðu vinsældum. Hinn fágaði hljómur Gambles og Huffs vakti mikla athygli og varð meðal annars til þess að David Bowie tók plötuna sína Young Americans upp í Sigma Sound árið 1974.

Fyrir nokkrum vikum gaf Harmless-útgáfan út veglegan 40 ára afmælispakka með tónlist Philadelphia International. Harmless er þekktust fyrir ódýrar endurútgáfur af fönki og grúvi, en hér hafa forsvarsmenn hennar ákveðið að leggja allt undir. Í PI afmælispakkanum eru 165 lög á tíu geisladiskum, næstum því þrettán klukkutímar af tónlist. Það fylgir líka 60 blaðsíðna bók með ýtarlegum upplýsingum og útgáfulista, skrifuð af Ralph Tee og David Grimes sem báðir eru á meðal virtustu PI-sérfræðinga heims. Tónlist PI hefur verið margendurútgefin, en þessi nýi afmælispakki er í sérflokki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×