Hungurverkfall Pesoli á enda Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. ágúst 2012 09:13 Pesoli í skallaeinvígi gegn Brasilíumanninum Lucio. Nordicphotos/Getty
Ítalski knattspyrnumaðurinn Emanuele Pesoli batt í gær enda á vikulangt hungurverkfall sitt. Pesoli var í síðustu viku dæmdur í þriggja ára bann frá knattspyrnu fyrir sinn þátt í hagræðingu úrslita í leik með Siena í ítölsku deildakeppninni. Peslo hóf hungurverkfall sitt í síðustu viku í kjölfar dómsins og hlekkjaði sig við aðgangshliðið að höfuðstöðvum ítalska knattspyrnusambandsins í Róm á laugardag. Hann óskaði eftir fundi með forseta sambandsins til að ræða sín mál en hann neitar staðfastlega sök. Pesoli, sem leikur með Verona í dag, er einn fjölmargra sem hlotið hafa refsingu fyrir sinn þátt í hagræðingu úrslita í ítalska boltanum undanfarin ár. Annar er þáverandi knattspyrnustjóri hans hjá Siena, Antonio Conte, sem í dag þjálfar Juventus. Hann hlaut tíu mánaða bann frá knattspyrnu. „Ég hef slegið mótmælum mínum á frest að hluta vegna aðstoðar varaforseta ítalska knattspyrnusambandsins, Demetrio Albertini, að hluta vegna fyrirhugaðs fundar með Abete (forseta sambandsins) á föstudag og einnig vegna ráðlegginga læknis míns sem neyddi mig til þess að borða í morgun," sagði Pesoli.
Ítalski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Sjá meira