Tónlist

Ætlar að safna hálfri milljón á vefsíðu

Upptökur á nýrri plötu hljómsveitarinnar Nóru hófust í febrúar og er nánast lokið.
Upptökur á nýrri plötu hljómsveitarinnar Nóru hófust í febrúar og er nánast lokið. mynd/ingólfur júliusson
Hljómsveitin Nóra ætlar að safna um hálfri milljón króna í gegnum vefsíðuna Pledgemusic.com. Peningarnir verða notaðir í gerð annarrar plötu sveitarinnar sem kemur út í haust.

"Þetta er svipuð síða og Kickstarter.com nema þetta er bara fyrir tónlist. Það er fjöldinn allur af tónlistarmönnum sem notfærir sér þetta," segir Egill Viðarsson úr Nóru en hljómsveitin gefur plötuna út sjálf.

Pledgemusic.com virkar þannig að hljómsveitir skrá sig á síðuna og velja ákveðin tímamörk - 30, 60 eða 90 daga - til að ljúka við söfnunina. Fram að þeim tíma selja þær ýmsar vörur úr sínum herbúðum og geta til dæmis selt plötuna sína fyrir fram. Peningarnir sem safnast fara svo upp í kostnaðinn á plötunni.

Upptökurnar hófust í febrúar og er þeim nánast lokið. Fram undan er hljómjöfnun og framleiðsla plötunnar og er Nóra að hefja söfnun fyrir því. Egill hvetur aðrar íslenskar sveitir til að prófa Pledgemusic.com. "Okkur finnst þetta mjög sniðugt og þess vegna fannst okkur um að gera að vekja smá athygli á þessu."

Þeir sem vilja leggja Nóru lið geta kíkt á slóðina pledgemusic.com/project/nora.

- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×