Viðskipti erlent

iPhone 5 lendir í næstu viku

Mynd sem Apple birti á heimasíðu sinni í dag.
Mynd sem Apple birti á heimasíðu sinni í dag. mynd/apple
Tæknirisinn Apple hefur boðað til blaðamannafundar í næstu viku. Sem fyrr gefur fyrirtækið ekki upp hvert fundarefnið sé. Það þykir þó vera nær öruggt að nýr iPhone snjallsími verði afhjúpaður á fundinum.

Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að Apple muni kynna nýjan snjallsíma til sögunnar í haust. Þá er einnig búist við að fyrirtækið muni opinbera minni útgáfu af iPad spjaldtölvunni.

Ef marka má fréttatilkynningu Apple er ljóst að snjallsíminn verði einfaldlega kallaður iPhone 5.

Blaðamannafundurinn hefst klukkan 17 að íslenskum tíma, 12. september næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×