Tónlist

Gleymmérei - nýtt lag og myndband frá Gabríel

Myndband við nýjasta lag Gabríels, Gleymmérei, var frumsýnt á Vísi í dag. Gabríel fékk til liðs við sig vel valda listamenn, þar á meðal eru Björn Jörundur Friðbjörnsson sem sér um sönginn og Emmsjé Gauti sem rappar.

Metnaðarfullt tónlistarmyndband var framleitt til að fylgja laginu eftir. Aðeins var ein myndatökuvél notuð og var myndbandið tekið í einni töku. Umfangið var mikið. Í kringum hundrað aukaleikarar komu að gerð myndbandsins en það var tekið á sólríkum degi í Reykjavík.

Það var Eilífur Örn Þrastarson sem sá um leikstjórn myndbandsins. Hann gerði einnig myndbandið við lagið „Passaðu þig" með rapparanum Nadiu en það naut mikilla vinsælda fyrr á árinu.

Gabríel hefur í nógu að snúast um þessar mundir. Hann mun meðal annars koma fram á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í haust ásamt fríðu föruneyti söngvara og rappara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×