Viðskipti erlent

Ný spjaldtölva frá Google og Samsung

Hugo Barra, stjórnandi vöruþróunar hjá Android.
Hugo Barra, stjórnandi vöruþróunar hjá Android. MYND/AFP
Talið er að tæknifyrirtækin Google og Samsung muni kynna nýja spjaldtölvu seinna í þessum mánuði. Tölvan verður að öllum líkindum hluti af Nexus vörulínunni sem fyrirtækin hafa þróað síðustu ár.

Líklegt þykir að snertiskjár spjaldtölvunnar verði tíu tommur að stærð með 2560 x 1600 upplausn. Þannig verður skjárinn með hátt í 300 punkta upplausn sem er töluvert hærri upplausn en Apple býður upp á á nýjustu iPad-spjaldtölvunni.

Google hefur ekki viljað tjá sig um spjaldtölvuna. Þannig er lítið sem ekkert vitað um tækjakost hennar eða fyrirhugað verð.

Þá er talið að spjaldtölvan verði knúin af uppfærðu stýrikerfi Google, Android 4.2. Óvíst er hvort að stýrikerfið verði kynnt sem ný vara eða uppfærsla á núverandi kynslóð Android-stýrikerfisins, Jelly Bean.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×