Alexander: Þetta verður mjög erfiður leikur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2012 14:45 Alexander Petersson í leik með íslenska landsliðinu á Ól í London. Mynd/AFP
Alexander Petersson verður í stóru hlutverki að venju þegar íslenska karlalandsliðið spilar sinn fyrsta leik undir stjórn Arons Kristjánssonar í kvöld. Strákarnir mæta þá Hvít-Rússum í Laugardalshöllinni í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2014. „Þetta verður mjög erfitt. Við erum með nýjan þjálfara og höfum aðeins tvo daga til að samstilla liðið," segir Alexander Petersson. „Það sem við vorum að reyna í vörninni í gær var ekki eins einfalt og alltaf. Aron vill líka breyta aðeins til og þá kemur misskilningur á milli varnarmanna. Í morgun (í gær) var líka varnaræfing og hún var aðeins betri en þetta verður mjög erfiður leikur," segir Alexander. „Ég vildi ekki vera í sporum Arons því þetta er mjög erfitt og við þurfum að hjálpa honum mikið. Við þurfum að gefa allt okkar og ef að eitthvað virkar ekki þá þurfum við bara að gera það sem við gerðum áður," segir Alexander. „Við sjáum til hvernig þetta gengur en ég hlakka til að spila á morgun. Þessi leikur kemur samt aðeins of snemma það hefði verið betra að spila hann á laugardaginn eða jafnvel föstudaginn því hefðum við meiri tíma til að vinna saman," segir Alexander. Alexander fær enn meiri ábyrgð í leik íslenska liðsins nú þegar Ólafur Stefánsson hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. „Mér er alveg sama hvað fólk er að segja eða hugsa. Ég ætla bara að gera mína hluti vel, mæta á staðinn, gefa allt og svo fara," sagði Alexander í léttum tón. „Ég held að við munum gera mörg mistök í vörninni en þeir gera það örugglega líka. Þetta verður mjög erfiður leikur en við vinnum þetta með fjórum mörkum," sagði Alexander að lokum.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúla 1 Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Íslenski boltinn Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Frá út leiktíðina og missir af HM Enski boltinn Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs Íslenski boltinn Áfall fyrir Valsmenn: Frank Aron fór sárþjáður af velli Körfubolti Fleiri fréttir Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Reynir markahæstur í þungu tapi „Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ ÍR segir miðil dreifa lygasögu um leikmenn Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ „Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær framlengingar Hetjuleg frammistaða Hauks dugði ekki til sigurs Berlín batt enda á sigurgöngu lærisveina Guðjóns Vals Grótta færist nær úrvalsdeild en fall blasir við Stjörnunni Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi Uppgjörið: Valur - Fram 31-27 | Kústarnir sóttir í hálfleik Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistaradeild Evrópu Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Grétar lætur staðar numið í Skógarselinu Rændir í miðju lyfjaprófi Stjörnukonur jöfnuðu metin Ómar Ingi klikkaði í vítakeppni og Magdeburg úr leik í bikarnum Uppgjör: Haukar-ÍBV 28-29 | Birna Berg mögnuð og Eyjakonur jöfnuðu Valskonur einum sigri frá úrslitaeinvíginu eftir stórsigur Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Sjá meira