NBA í nótt: Sigrar hjá New York-liðunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. nóvember 2012 09:00 Deron Williams, leikmaður Brooklyn. Mynd/AP
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. New York Knicks og Brooklyn Nets unnu bæði sigra í sínum leikjum og virðast á góðu skriði. Knicks vann Detroit, 121-100. Carmelo Anthony skoraði 29 stig fyrir heimamenn og Steve Novak átján. Hjá Detroit var Brandon Knight stigahæstur með 21 stig. New York, sem hafði tapað tveimur leikjum í röð fyrir þennan, er í öðru sæti Austurdeildarinnar með níu sigra í tólf leikjum. Brooklyn er í þriðja sæti í austrinu en liðið hafði betur gegn Portland í gær, 98-85. Deron Williams skoraði fimmtán stig, gaf tólf stoðsendingar og varði fjögur skot. Joe Johnson var með 21 stig en Brooklyn hefur fimm leiki í röð á heimavelli sínum. Wesley Matthews skoraði 20 stig og JJ Hickson var með nítján stig og tíu fráköst fyrir Portland. Þá vann San Antonio sigur á Toronto, 111-106, í tvíframlengdum leik. Tony Parker var með 32 stig, þar af sex í seinni framlengingunni. Tim Duncan var með 26 stig. Boston vann Orlando, 116-110, í framlengdri viðureign. Kevin Garnett var með 24 stig og tíu fráköst og Paul Pierce 23 stig. Rajon Rondo var hársbreidd frá þrefaldri tvennu en hann var með fimmtán stig, sextán stoðsendingar og níu fráköst.Úrslit næturinnar: Toronto - San Antonio 106-111 New York Knicks - Detroit 121-100 Brooklyn - Portland 98-85 Philadelphia - Phoenix 104-101 Orlando - Boston 110-116 Denver - New Orlenas 102-84
NBA Mest lesið Ferill Jake Paul í hættu Sport Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti „Einhver barnaskapur held ég“ Körfubolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Íslenski boltinn „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ Handbolti Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Byrjaði níu leiki en valinn bestur Fótbolti Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Sport Fleiri fréttir „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Einum sigurleik frá Bónus deildinni Óskar hættur en verður seint fullþakkað Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Kunni betur á moppuna og fagnaði sigri „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Sjá meira