Lífið

Hefur ekki drukkið í sjö ár

Tónlistarkonan Lana Del Rey segir nýju plötuna vera um villta fortíð og ástarsorg. Nú hefur hún hins vegar ekki drukkið í sjö ár. 
Nordicphotos/getty
Tónlistarkonan Lana Del Rey segir nýju plötuna vera um villta fortíð og ástarsorg. Nú hefur hún hins vegar ekki drukkið í sjö ár. Nordicphotos/getty nordicphotos/getty
Tónlistarkonan Lana Del Rey hefur ekki drukkið áfengi í sjö ár en þetta viðurkennir söngkonan í viðtali við bandaríska Vogue.

Það má varla fletta blaði þessa dagana án þess að sjá tónlistarkonuna Lönu del Rey og flestir sammála um að hún sé skærasta stjarna komandi árs. Hún er í viðtali við nýjasta tölublað Vogue og lætur allt flakka.

Plata hennar Born To Die hefur selst vel og segir söngkonan að innblástur plötunnar hafi verið erfið fortíð og ástarsorg. „Platan er samin um ákveðið tímabil í mínu lífi þegar ég drakk alltof mikið og var ástfanginn. Ástarsorgin breytti mér og nú hef ég ekki tekið sopa af áfengi í sjö ár,“ segir Del Rey og viðurkennir að hún sé á rólegri stað í lífinu í dag. „Mér líður vel og kannski of vel. Ég veit ekki hvort ég gæti samið aðra plötu núna. Mér finnst ég hafa sagt allt sem ég þarf að segja og hef engu við þessa plötu að bæta núna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×