Þegar allir leggjast á eitt er árangur vís Guðbjartur Hannesson skrifar 14. mars 2012 06:00 Vinnumálastofnun hefur undanfarin misseri efnt til fjölmargra verkefna til að stuðla að virkni fólks í atvinnuleit, skapa því tækifæri til að mennta sig, auka vinnufærni og takast á við verkefni sem eru uppbyggileg hvatning til atvinnuþátttöku nú þegar eða síðar þegar atvinnutækifærum fjölgar. Fjölbreytni úrræða sem á sér vart fordæmiErfitt atvinnuástand og atvinnuleysi hefur mikið verið til umfjöllunar frá hausti 2008 enda ástandið framandi í samfélagi þar sem jafnan hafa verið til störf fyrir alla sem vilja og geta unnið. Tölur um atvinnuleysi verða þó ekki umfjöllunarefni mitt hér, heldur sú öfluga uppbygging fjölbreyttra tækifæra fyrir atvinnuleitendur til að styrkja stöðu sína sem átt hefur sér stað síðustu ár og ég held að eigi sér vart fordæmi. Þetta hefur krafist víðtækrar samvinnu og virkrar þátttöku fjölmargra aðila, en ekki síst öflugrar forystu Vinnumálastofnunar þar sem verkefni eru skipulögð og þeim fylgt eftir. Þar hefur byggst upp mikil þekking á þessu sviði, þar er yfirsýn um atvinnuástand, fjölda atvinnuleitenda og aðstæðna innan hópsins sem er forsenda þess að skilgreina markhópa og skipuleggja vinnumarkaðsúrræði við hæfi hvers og eins. Staðan erfiðust fólki með stutta skólagöngu að bakiAð missa vinnuna er áfall. Að vera í atvinnuleit og koma alls staðar að lokuðum dyrum er skelfilegt og það er illt veganesti fyrir ungt fólk sem ætlar að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði að vera alls staðar hafnað. Erfiðust er staða þeirra sem hafa skemmsta skólagöngu að baki. Um helmingur atvinnuleitenda hefur ekki lokið neinu námi eftir grunnskóla og um 75% þeirra sem eru 25 ára og yngri. Áhersla hefur verið lögð á vinnumarkaðsúrræði sem taka mið af þessari staðreynd. Í samfélaginu ríkir almennt mikill skilningur á nauðsyn þess að bregðast við þessu ástandi. Það er ómetanlegt hvað stofnanir ríkisins, sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki hafa verið reiðubúin til þátttöku í þeim fjölmörgu átaksverkefnum sem efnt hefur verið til í þessu skyni og það sýnir sig að þegar allir leggjast á eitt er árangurinn vís. Í ársbyrjun 2010 hófst stórátakið Ungt fólk til athafna í kjölfar ákvörðunar stjórnvalda um að verja 1,3 milljörðum króna til að skapa tækifæri fyrir fólk án atvinnu til starfa, menntunar eða annars konar virkni með áherslu á úrræði fyrir ungt fólk og aðgerðir til að bregðast við langtímaatvinnuleysi. Sett var það markmið að aldrei skyldu líða meira en þrír mánuðir frá því að einstaklingur missti starf þar til honum væri boðið starf, námstækifæri, starfsþjálfun eða þátttaka í öðrum verkefnum og náðist það markmið fáum mánuðum síðar. Frá því að átakið hófst til ársloka 2011 höfðu ráðgjafar hitt um 5.000 unga atvinnuleitendur og af þeim höfðu um 3.000 verið skráðir af atvinnuleysisskrá sem telst mjög góður árangur. Í ljósi góðrar reynslu af verkefninu Ungt fólk til athafna voru aldursmörk fyrir þátttöku hækkuð í 29 ár og jafnframt ýtt úr vör nýju átaksverkefni gegn langtímaatvinnuleysi undir heitinu ÞOR – þekking og reynsla, fyrir fólk á aldrinum 30-70 ára. Frá upphafi átaksins í ágúst 2010 til ársloka 2011 höfðu um 7.500 tekið þátt í verkefninu og var þá hátt í helmingur þeirra kominn með starf eða farinn í nám og skráður af atvinnuleysisskrá. Brottfall úr námi virðist minna en gengur og geristSamstarfsverkefni ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins, Nám er vinnandi vegur, hófst árið 2011 til að bregðast við langtímaatvinnuleysi með hvatningu og auknum tækifærum fyrir atvinnuleitendur til að hefja nám. Með góðu samstarfi við skólastjórnendur tókst að tryggja skólavist öllum sem eftir því leituðu og fullnægðu inntökuskilyrðum haustið 2011 og skapa námstækifæri fyrir um 1.000 atvinnuleitendur í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu. Skilyrði var að þátttakendur hefðu verið án atvinnu í hálft ár eða lengur. Þessir einstaklingar fengu námsvist í eina önn án þess að missa rétt til atvinnuleysisbóta, uppfylltu þeir kröfur um ástundun, en bætur féllu síðan niður hygðust þeir halda náminu áfram. Rúmlega 900 manns hófu nám í haust á grundvelli átaksins. Af þeim hópi eru yfir 800 sem ákváðu að halda áfram námi á vorönn sem bendir til að brottfall þessara einstaklinga úr námi sé jafnvel minna en almennt gengur og gerist. Atvinnutengd vinnumarkaðsúrræði reynast árangursríkNú er hafið nýtt átaksverkefni atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins gegn langtímaatvinnuleysi undir slagorðinu Vinnandi vegur sem var kynnt nýlega á atvinnumessu í Reykjavík. Fyrirhugað er að hafa sambærilega atvinnumessu á Suðurnesjum. Sérstök áhersla verður lögð á þann hóp atvinnuleitenda sem verið hefur án atvinnu í eitt ár eða lengur, ekki síst þann hóp sem er að ljúka rétti sínum til atvinnuleysisbóta á þessu ári. Með samvinnu við sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki standa vonir til að unnt verði að ráða um 1.500 manns af atvinnuleysisskrá í ný starfstengd vinnumarkaðsúrræði um allt land. Tölur Vinnumálastofnunar sýna að atvinnutengd vinnumarkaðsúrræði reynast stórum hópi fólks greið leið inn á vinnumarkaðinn. Á ársgrundvelli eru um 63% atvinnuleitenda sem taka þátt í slíkum úrræðum farin af atvinnuleysisskrá þremur mánuðum eftir að þátttöku lýkur og hefur þá ýmist boðist áframhaldandi starf á viðkomandi vinnustað eða nýtt starf annars staðar. Uppbyggilegar atvinnuleysisbæturVerkefnin sem ég hef nefnt byggjast á því að atvinnuleysisbætur nýtist á uppbyggilegan hátt og komi samfélaginu öllu að gagni. Með því að skapa aukin tækifæri til náms eða starfsþátttöku, kynna þau og hvetja fólk til þátttöku mynda atvinnuleysisbæturnar nokkurs konar grunn að bjartari framtíð fólks eins og hefur svo sannarlega sýnt sig í átakinu Nám er vinnandi vegur. Starfstengdu úrræðin byggjast á sömu hugsun því atvinnurekendur sem fjölga hjá sér störfum og leggja þannig átakinu lið geta ráðið fólk af atvinnuleysisskrá í tiltekinn tíma en bæturnar ganga upp í launakostnað og mæta þannig stofnkostnaði vegna starfsins. Framhald síðar…Hér hefur verið lýst í stuttu máli nokkrum þeirra verkefna sem unnið er að á sviði vinnumiðlunar og vinnumarkaðsúrræða fyrir atvinnuleitendur. Starfið er þó miklu umfangsmeira og mun ég gera því betri skil í annarri grein sem birtist á næstu dögum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðbjartur Hannesson Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun