Tónlist

Harma sviðsslys í Toronto

Áfall Meðlimur í föruneyti Radiohead lést er svið sem hljómsveitin átti að koma fram á hrundi. nordicphotos/getty
Áfall Meðlimur í föruneyti Radiohead lést er svið sem hljómsveitin átti að koma fram á hrundi. nordicphotos/getty
Einn maður lést þegar svið sem hljómsveitin Radiohead átti að leika á í Toronto hrundi til grunna og þrír aðrir slösuðust. Enn er ekki ljóst hvað olli slysinu. Scott Johnson, hljóðmaður í föruneyti Radiohead, lést er sviðið hrundi og var úrskurðaður látinn á staðnum. Meðlimir sveitarinnar sendu frá sér tilkynningu þar sem þeir segjast miður sín vegna slyssins. „Scott var ljúfur maður, ávallt jákvæður og skemmtilegur. Hann var einstaklega hæfileikaríkur og vel liðinn og við munum sakna hans mjög mikið. Hugur okkar er hjá fjölskyldu Scotts,“ stóð í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×