

Þar sem Evrópa endar? Um Ísland í Evrópu
Þess vegna er óhjákvæmilegt að allir hugi að stöðu Íslands í evrópsku samstarfi og hvernig hún verði best tryggð. Sjálfsagt er til dæmis í þessu samhengi að spyrja hvort aðildarumsóknin sé tímaskekkja og hvort EES-samningurinn dugi okkur. En við verðum að meta þessa stöðu af raunsæi. Aðild leysir ekki sjálfkrafa úr öllum erfiðleikum sem að löndum steðja eftir fjármálakreppuna, en staða utan evrusamstarfsins gerir það ekki heldur. Þátttaka í Evrópusamstarfi hefur í för með sér hættur, rétt eins og ávinning. Fyrsta skrefið er því að greina þátttöku Íslands í Evrópusamstarfi frá því EES-samningurinn var gerður og hvaða jákvæðar og neikvæðar afleiðingar þessi opnun hagkerfisins hefur haft.
Ísland varð með EES-samningnum árið 1993 aðili að mikilvægasta þætti Evrópusamstarfsins, innri markaði sem tryggir hindrunarlaus viðskipti með vörur, þjónustu, frjálsa för vinnuafls og fjármagnshreyfingar. Ástæðan fyrir aðild okkar að innri markaðnum þá var augljós, en þó langt í frá óumdeild. Íslenskt efnahagslíf var komið í ógöngur einangrunar, hringamyndunar og pólitískra flokkadrátta undir lok níunda áratugar síðustu aldar. Fyrir ungu fólki í dag hljómar það fjarstæðukennt að pólitískar skoðanir en ekki vörugæði hafi ráðið kaupum á bifreiðum, tækjum, olíu, tryggingum og frakt, en sú var engu að síður raunin. Hægt var að aka um sveitir landsins og sjá á bíla- og vélakosti hvort viðkomandi bóndi kysi Framsókn eða Sjálfstæðisflokk. Frægt er tilsvar Framsóknarmannsins: „Frekar keyri ég bensínlaus en á bensíni frá Skeljungi.“
Þetta einhæfa atvinnulíf var komið í þrot af súrefnisleysi undir lok níunda áratugar síðustu aldar. Það var óhagkvæmt, varið fyrir samkeppni og naut hvorki fullnægjandi aðgangs að fjármagni á arðsemisforsendum né erlendum mörkuðum. Hið lokaða Ísland forréttindahópa Kolkrabba og Sambandsins gekk vel á meðan sjávarafli jókst ár frá ári, en um leið og gjöfular auðlindir hættu að niðurgreiða kostnað þjóðarinnar af fákeppni og klíkuveldi hætti hagkerfið að vaxa.
EES-samningurinn leysti þetta vandamál í einu vetfangi og var alger forsenda efnahagsuppgangs sem hófst strax upp úr miðjum tíunda áratug tuttugustu aldar. Íslenskar útflutningsgreinar fengu fullan og hindrunarlausan markaðsaðgang og tollar á flestar sjávarafurðir féllu niður. Íslenskar samkeppnisgreinar fengu ný vaxtartækifæri sem þær nýttu vel – Össur, Marel, Actavis, CCP eru bara nokkur dæmi um fyrirtæki sem uxu í skjóli frjálsra markaðsviðskipta og aðgangs að fjármagni og mörkuðum og hefðu ekki getað vaxið með sama hætti fyrir tilkomu EES-samningsins. Samkeppnislöggjöf var sett í fyrsta sinn að evrópskri fyrirmynd og þannig var bundinn endir á víðtækt og landlægt samráð um verð og framboð á vöru og þjónustu, sem hafði takmarkað getu samfélagsins til verðmætasköpunar um áratugi og jafnvel aldir. EES-samningurinn opnaði einnig fyrir erlent fjármagnsstreymi til Íslands, sem var burðarstoð í uppbyggingu atvinnulífsins. Nágrannalönd okkar búa við aldalanga reynslu af frjálsum mörkuðum, þar sem ólíkir hagsmunir leikast á og aðferðir við eftirlit með markaðshegðun hefur þróast á löngum tíma. Reynsla Íslands af frjálsum og valddreifðum markaði nær ekki einu sinni tveimur tugum ára.
EES-samningnum fylgdi líka fjölþjóðlegt eftirlit og dómsvald, sem var ekki síður mikilvægt. Eftirlitsstofnun EFTA var sett á fót til að tryggja að íslensk stjórnvöld færu að samningnum og EFTA-dómstólnum var falið dómsvald um réttindi og skyldur. EES gaf Íslendingum þannig kærkomið og langþráð frelsi til athafna í eigin rétti, braut niður pólitískt skömmtunarvald og kom böndum á rótgróið ofríki íslenskra stjórnvalda gagnvart eigin borgurum. „Með EES fengum við frelsi til að vera við sjálf,“ sagði ein góð kona.
Hannes Pétursson orðaði í frægu kvæði tilvistarspurningu Íslendingsins með þeim hætti sem vísað er til í heiti þessarar greinar: „Minn staður er hér, þar sem Evrópa endar.“ Hinn augljósi ávinningur af aðild Íslands að hinu evrópska viðskiptaumhverfi ætti að leiða okkur að þeirri niðurstöðu að við eigum augljóslega heima í Evrópu og Ísland sé ekki handan endimarka Evrópu. En þrátt fyrir þennan mikla ávinning hefur alþjóðavæðing efnahagslífsins og aðild okkar að EES líka haft í för með sér ýmsa neikvæða fylgikvilla og gert okkur berskjölduð gagnvart stórviðrum í hinu alþjóðlega fjármálaumhverfi. Um það mun ég fjalla í næstu grein.
Skoðun

Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Hugleiðingar um virðismat kennara
Bergur Hauksson skrifar

Hvar stendur barnið mitt í námi?
Helga Sigurrós Valgeirsdóttir skrifar

Áslaug Arna er framtíðin
Anton Berg Sævarsson,Birkir Örn Þorsteinsson,Birta Karen Tryggvadóttir,Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir,Ísak Svavarsson,Lovísa Ólafsdóttir,Páll Orri Pálsson,Þorleifur Hallbjörn Ingólfsson skrifar

Minning fórnarlamba helfararinnar svívirt
Einar Ólafsson skrifar

Minna af þér og meira af öðrum
Heiða Björk Sturludóttir skrifar

Að byggja upp öfluga og flotta leikskóla til framtíðar
Ísabella Markan skrifar

Að koma skriðdreka á Snæfellsnes
Jón Ingi Hákonarson skrifar

Ræstitækni ehf.: Fríríki atvinnurekandans
Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar

Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu?
Davíð Bergmann skrifar

Skiptir hugarfarið máli?
Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar

Við þurfum ekki að hafa alla með okkur í liði
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Verkfærakistan er alltaf opin
Ástþór Ólafsson skrifar

Píratar til forystu
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Beðið fyrir verðbólgu
Halla Gunnarsdóttir skrifar

Minni pólitík, meiri fagmennska
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Ný krydd í skuldasúpuna
Helgi Áss Grétarsson skrifar

Ferðasjóður ÍSÍ hefur rýrnað frá árinu 2019
Heimir Örn Árnason skrifar

Að spila með – Samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun ungmenna
Berglind Sveinbjörnsdóttir,Þórhildur Halldórsdóttir skrifar

Er Inga Sæland Þjófur?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Kona
Anna Kristjana Helgadóttir skrifar

Bókun 35, 38 og tækifæri fyrir ungt fólk í Brussel
Gunnar H. Garðarsson skrifar

Orð skulu standa
Jón Pétur Zimsen skrifar

Dúabíllinn og kraftur sköpunar
Einar Mikael Sverrisson skrifar

Enginn er betri en þú – enginn er snjallari en þú
Árni Sigurðsson skrifar

Viljum við það besta fyrir börnin okkar?
Hilmar Þór Sigurjónsson skrifar

Stéttin sem Sjálfstæðisflokkurinn kaus að yfirgefa
Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar

Tilfinningar í hrærigraut og engin orð til, né leyfilegt að segja það sem er...
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Samræmd próf gegn stéttaskiptingu
Þorlákur Axel Jónsson skrifar