Tónlist

London næst á dagskrá

„Ég verð með tónleika á þekktum klúbb sem heitir Voyage voyage. Þar eru haldin regluleg klúbbakvöld þar sem kynntir eru skandinavískir listamenn sem þeim þykir hvað mest spennandi þá stundina," segir íslenska poppstjarnan Daníel Óliver, sem er búsettur í Svíþjóð en heldur tónleika í London nú 27. september.

Daníel Óliver gefur út nýtt lag, DJ Blow My Speaker, í lok mánaðarins en lagið er nú þegar að gera góða hluti. Brot úr því hefur verið sett á internetið og eru bloggarar um gjörvalla Evrópu búnir að taka það fyrir og gefa því jákvæða dóma. Lagið fékk meðal annars þrusugóða dóma á bloggsíðunni Myfizzypop.blogspot.com þar sem bloggarinn Paul spáir því að nafn Daníels verði á allra vörum áður en árið er liðið.

Daníel Óliver mun einnig kíkja í viðtal á bresku tónlistastöðvarnar Chart Show TV og Dance Nation TV á meðan hann verður staddur þarlendis. Þar með fetar hann í fótspor listamanna á borð við Lady Gaga, Jennifer Lopez og hljómsveitina One Direction, en öll hafa þau farið í viðtöl á þessum sömu stöðvum. „Lagið hefur verið að fá mjög góða umfjöllun í Bretlandi og þegar þeir fréttu að ég væri að koma og halda tónleika vildu þeir endilega fá mig í viðtal," segir Daníel spenntur. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×