Tónlist

Lögin byrjuð að tínast inn

fulltrúarnir 2012 Greta Salóme og félagar kepptu í Eurovision 2012 fyrir Íslands hönd. Leitin að næstu fulltrúum er nú hafin.
fulltrúarnir 2012 Greta Salóme og félagar kepptu í Eurovision 2012 fyrir Íslands hönd. Leitin að næstu fulltrúum er nú hafin. fréttablaðið/daníel
„Við byrjuðum að taka á móti lögum fyrir undankeppni Eurovision síðastliðinn föstudag. Það er þegar farið að týnast inn og þar á meðal er komið eitt lag frá útlöndum. Lögin þurfa samt að vera frá Íslendingum komin að tveimur þriðju hlutum svo það þarf að athuga hvort það lag sé gjaldgengt í keppnina,“ segir Hera Ólafsdóttir hjá RÚV.

Áhugasamir hafa til mánudagsins 8.október til að senda lag sitt til keppni og að sögn Heru eru margir búnir að hringja inn og spyrjast fyrir.

„Það geta allir tekið þátt og engin þörf á að vera með lagið fullmixað eða tekið upp í hljóðveri, þó það sé auðvitað ekkert verra. Það má þess vegna taka þetta upp heima í stofu, bara svo framarlega sem laglínan og textinn heyrast vel,“ segir hún.

Það má búast við að listi laga sem taka þátt í undanúrslitunum verði tilbúinn í lok október. Fyrsta undanúrslitakvöldið verður svo haldið 12.janúar og úrslitaþátturinn þann 9.febrúar. Aðalkeppnin fer svo fram í Malmö í Svíþjóð 18.maí, en undanúrslitakvöldin verða 14. og 16. þess mánaðar.- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×