Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar 28. september 2012 06:00 Sæll, Jón Ásgeir! Ég var að lesa grein þína sem birtist í dagblaði eiginkonu þinnar þann 1. september sl. Þar tekur þú undir þau sjónarmið Víglundar Þorsteinssonar að Arion banki hafi sett saman „aftökulista". Af einhverjum ástæðum hafi bankinn ákveðið að „taka" af þér og fjölskyldu þinni Haga-verslunarveldið og mismunað ykkur herfilega þar sem þið áttuð hæsta tilboð, eins og þú fullyrðir, og þið hafið verið algerlega sniðgengin. Til að glöggva skilning almennings á „aftökulista" Arion banka spyr ég þig: Ert þú, Jón Ásgeir, tilbúinn að svara eftirfarandi spurningum svo að landsmenn geti áttað sig betur á hinu herfilega óréttlæti sem þú fullyrðir að þú og þín fjölskylda hafið mátt þola af hálfu íslensku bankanna? 1. Er það rétt að Baugur hafi ekki getað borgað af skuldabréfum lífeyrissjóðanna (sjóðum íslensks launafólks í landinu) í maí 2008, og var í raun hættur að borga af lánum töluvert fyrr, og því kominn í stórkostleg fjárhagsvandræði í árslok 2007? 2. Er það rétt, Jón Ásgeir, að þú og fjölskylda þín hafir í maí 2008 stofnað félagið 1998 ehf. og fengið 30 þúsund milljónir króna að láni til að kaupa Haga-verslunarveldið út úr Baugi um þremur mánuðum fyrir hrun? Ef rétt er hermt var hér um að ræða 100% lánveitingu, þ.e. þið lögðuð ekki fram krónu persónulega heldur fenguð 30 þúsund milljónir króna að láni, í sama mund og stærsta lausafjárkrísa sögunnar gekk yfir, til að koma Haga-verslunarveldinu út úr Baugi – burt frá kröfuhöfum Baugs og undir ykkar stjórn! Í Rannsóknarskýrslu Alþingis segir svo um þennan gerning ykkar: „Rannsóknarnefnd Alþingis vekur athygli á því að Baugur Group notaði hluta af sölutekjum sínum af því að selja Haga til 1998 ehf. til að kaupa eigin hlutabréf af stærstu eigendum sínum. Í þessu tilviki var um að ræða 15 milljarða króna virði hlutafjár, að því gefnu að hlutirnir hafi verið rétt verðlagðir, og ekki verður séð að félagið hafi selt öðrum þetta hlutafé síðar. Raunin var því sú að eigendur Baugs voru með þessu að taka til sín hluta af fjármunum félagsins, án þess að nokkuð lægi fyrir um hvort hagnaður yrði af rekstri félagsins árið 2008. Í eðli sínu jafngildir þetta arðgreiðslu, en með útgreiðslu á þessu formi var komist hjá því að uppfylla þyrfti skilyrði sem lög setja fyrir arðgreiðslum úr félögum. […] Nefndin telur ljóst af þeim gögnum sem hún hefur kynnt sér að sú aðferð sem þarna var viðhöfð við kaup Baugs á eigin hlutabréfum hafi verið til þess fallin að rýra hagsmuni og stöðu þeirra fjármálafyrirtækja sem áttu kröfur á Baug og rannsókn nefndarinnar tekur til." Er þetta rétt, Jón Ásgeir? Notuðuð þið, stjórnendur og stærstu eigendur Baugs, helminginn af kaupverði Haga – þ.e. 15 þúsund milljónir króna – til að kaupa persónuleg hlutabréf ykkar í Baugi rétt fyrir hrun í stað þess að greiða skuldir Baugs við lífeyrissjóðina (sjóði íslensks launafólks í landinu) eða bankana? Nánar tiltekið: Er það virkilega rétt að þið fenguð Haga-verslunarveldið aftur í ykkar eigu, ásamt því að fá 15 þúsund milljónir króna í eigin vasa, fyrir verðlaus hlutabréf ykkar í Baugi, um það bil þremur mánuðum fyrir hrunið 2008? 3. Hversu mikils virði telur þú að hlutabréfin í Baugi hafi verið svona rétt fyrir hrun þegar þið náðuð að selja hlutabréfin ykkar til Baugs fyrir 15 þúsund milljónir króna? Var þetta sannvirði fyrir bréfin? Ekki gleyma að Baugur var löngu hættur að borga af skuldabréfum lífeyrissjóðanna, sem og að borga af lánum sínum almennt, innanlands sem erlendis, og stuttu seinna fór Baugur í gjaldþrot og heildarskuldir félagsins nema um 320 þúsund milljónum króna (þ.e. um ein milljón fyrir hvern Íslending). Gjaldþrot dótturfélags Baugs, BG Holding, sem hélt utan um erlendar eignir Baugs, nemur svo um 150 þúsund milljónum til viðbótar, skv. fréttum nýlega. Samtals hljóðar gjaldþrot Baugs því upp á a.m.k. 470 þúsund milljónir króna en þá er eftir að telja upp öll hin dótturfélög Baugs sem nema tugum. Jón Ásgeir, var mikil eftirspurn eftir hlutabréfum Baugs á þessum tíma? 4. Er það rétt að þú, og félög þér tengd, hafið svo fengið um 2,8 þúsund milljónir króna til viðbótar að láni frá íslensku bönkunum til að kaupa enn meira af hlutabréfum í Baugi sem voru í eigu eiginkonu þinnar sumarið 2008, án veða eða trygginga? 5. Er það rétt, Jón Ásgeir, að með þessum 15 þúsundum milljóna króna hafið þið hjónakornin náð að greiða ykkar persónulegu skuldir og eignarhaldsfélaga ykkar sem skýrir af hverju þið getið haldið eignum ykkar, að verðmæti þúsunda milljóna, enn þann dag í dag? (Það er annað en almenningur í þessu landi). 6. Er það rétt að skuldir 1998 ehf., sem þið notuðuð til að kaupa Haga út úr Baugi, hafi verið komnar í u.þ.b. 40–50 þúsund milljónir króna við hrunið og þar sem verðmæti Haga var nokkrum tugum milljörðum lægra, þá var það því algerlega útilokað fyrir ykkur að borga fyrir Haga, þ.e. að standa skil á afborgunum til bankanna? Ert þú til í að útskýra fyrir okkur hin hvað Arion banki átti að gera þegar þessi skuldastaða var ljós? Hvað gat bankinn gert annað en að taka veðin, þ.e. Haga, frá ykkur til greiðslu upp í skuldina þegar ljóst var að skuldir ykkar námu tugum þúsundum milljónum meira en þið gátuð greitt ? Átti Arion banki bara að taka á móti „Bros-kalla-tölvupóstum" með fyrirskipunum hvað ætti að gera og „redda þessu"? Er hugsanlegt að Arion banki hafi eingöngu verið að gera það sem venjulegir bankar gera, þ.e. ganga að veðum og tryggja hagsmuni bankans, þar sem ljóst var að þið skulduðuð um 50 þúsund milljónir í gegnum 1998 ehf. og útilokað var að það fengist greitt þar sem hin félögin ykkar skulduðu mörg hundruð þúsund milljónir króna til viðbótar? 7. Er það rétt að þrátt fyrir að búið sé að taka Haga af ykkur til greiðslu upp í skuldina hafi Arion banki þurft að afskrifa um tugi þúsunda milljóna króna vegna 1998 ehf.-fléttu ykkar hjóna? Jón Ásgeir, það hefur verið skelfilegt að lesa um þær grimmilegu ofsóknir sem þú og fjölskylda þín hafið mátt þola frá yfirvöldum í gegnum árin og maður spyr sig hvort ekkert réttlæti sé til lengur? Hlusta bankarnir virkilega ekki lengur á tölvupóstana frá þér um hvernig þeir eigi að haga sér? Heimta bankarnir virkilega að menn greiði skuldir sínar eins og við hin eigum að gera og ganga síðan að veðum bara eins og við hin þurfum að þola þegar menn geta ekki borgað tugþúsunda milljóna skuldir? Eftir ofsóknir ríkislögreglustjóra í Baugsmálinu, skattyfirvalda, og nú skiptastjóra Baugs og Fons, sem og ofsóknir slitastjórnar Glitnis á hendur þér og þinni fjölskyldu, sem þú ert allaf að tala um, leyfa þeir sér að fullyrða að þú hafir rænt bankann innan frá! Húsleit og rannsókn sérstaks saksóknara á viðskiptaháttum þínum, og hinni „ótengdu" eiginkonu þinni í lánabók Glitnis, er auðvitað með miklum ólíkindum! „Aftökulisti" Arion banka er svo kornið sem fyllir mælinn! Ætlar Davíð Oddson og „bláa höndin" aldrei að láta ykkur í friði? Hin íslenska þjóð situr orðlaus yfir þessum miskunnarlausu grimmdarverkum bankanna á hendur þér og fjölskyldu þinni – að leyfa sér að taka stærsta verslunarveldi Íslands af ykkur, þótt Baugur hafi skuldað um 320 þúsund milljónir króna, 1998 ehf. skuldað um 40–50 þúsund milljónir og BG Holding félag Baugs og ykkar um 150 þúsund milljónir, er bara svo ótrúlega ósvífinn gerningur að maður trúir þessu varla. Ég sleppi að minnast á skuldir Gaums, ISP ehf., Landic Property, 365, Teymis, Dagsbrúnar, Sólin skín ehf., Styrk Invest ehf., Stoðir Invest, A-Holding ehf. og fleiri félaga. Það er náttúrulega glórulaust að bankarnir skuli ekki skilja að þetta var allt gjaldþroti Lehmanns Brothers, Davíð Oddssyni og „bláu höndinni" að kenna. Þið hefðuð örugglega náð að borga þetta allt saman 100%, ef Arion banki hefði bara gert það sama og Lárus Welding, sérstakur bankastjóri þinn í Glitni hafði gert, – lesið fyrirskipanirnar í tölvupóstum frá þér og lánað þér bara fleiri milljarða. Það fer nú að vera tímabært, Jón Ásgeir, að senda inn formlega kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu – miðað við lýsingar þínar er ekki nokkur vafi að þú færð gjafsókn og flýtimeðferð. Nú bíðum við spennt eftir að lesa svör þín við þessum spurningum svo að ég og íslenska þjóðin skiljum þetta til fulls. Virðingarfyllst, Jón Gerald Sullenberger PS: Var að lesa forsíðu DV í dag, miðvikudag 12. september, sem segir frá því að eiginkona þín hafi fengið 20 þúsund milljónir króna afskrifaðar í gegnum félag ykkar, 101 Capital ehf. Það er a.m.k. smá sárabót, Jón Ásgeir. En bankarnir verða að gera miklu miklu betur fyrir ykkur. Vertu viss, hin íslenska þjóð stendur öll á bak við þig og fjölskyldu þína í þessari mannréttindabaráttu þinni í þágu réttlætisins. Sanngjarnt skal það vera! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun