Kraftbirting tónlistarinnar Arna Kristín Einarsdóttir skrifar 30. nóvember 2012 08:00 Tónleikar Fílharmóníuhljómsveitar Berlínar í Eldborgarsal Hörpu 22. nóvember síðastliðinn voru án efa einn af hápunktum íslensks tónlistarlífs frá upphafi. Setið var í öllum 1.800 sætum salarins, á bak við hljómsveitina og alveg upp í rjáfur. Upplifun tónleikagesta var slík að húrrahrópunum ætlaði aldrei að linna, bæði fyrir hlé og í lok tónleika. Það er óhætt að segja að heimsókn Berlínarfílharmóníunnar marki tímamót í menningarsögu Íslendinga. Hljómsveitin er talin ein af bestu hljómsveitum í heimi og á sér langa sögu, en hún var stofnuð árið 1882. Í 5 stjörnu gagnrýni sinni á tónleika hljómsveitarinnar lét tónlistargagnrýnandi Fréttablaðsins hjá líða að geta ástæðu þess að Berlínarfílharmónían sótti Íslendinga heim. Hér var það Harpa sem lék lykilhlutverk. Berlínarfílharmónían tók að þessu sinni stefnuna á ný tónlistarhús á Norðurlöndum. Hún lék í nýju tónleikahúsi í Helsinki sem vígt var stuttu á eftir Hörpu. Hún lék í nýjum sal Dönsku útvarpshljómsveitarinnar í Kaupmannahöfn. Undantekningin sem sannaði regluna var tónleikar í Konserthuset i Stokkhólmi, sem svo sannarlega er ekki nýtt hús. Og norrænu yfirferðinni lauk svo með tónleikunum í Hörpu. Það sem fram að Hörpu var algjörlega óhugsandi er orðið að veruleika: Erlendar úrvalshljómsveitir telja sig ekki geta misst af því tækifæri að koma til Íslands til að spila í tónlistarhúsinu sem sögur fara af. Tónlistarhúsi sem byggt var þrátt fyrir efnahagshrun.60% aukning Það er óumdeilanlegt að Harpa er tónleikahús sem hefur sett Ísland á kortið. Harpa setur okkur í alþjóðlegt samhengi. Í þetta sinn eru það ekki náttúruhamfarir á borð við Eyjafjallajökul, öskuský eða jarðskjálfta. Ekki heldur búsáhaldabylting og efnahagshörmungar. Í þetta sinn er það hús, raunar glerhjúpur, listaverk, utan um einn magnaðasta tónleikasal í Evrópu. Auðvitað er hægt að skilja þær raddir sem tala um kostnað, bæði við byggingu og rekstur Hörpu. Og auðvitað eru það algjör forréttindi fyrir íslenskt tónlistarfólk, sem beið í meira en hálfa öld eftir tónleikasal, að fá að vinna við þessar kjöraðstæður. Það hefur hins vegar sýnt sig frá opnun Hörpu að húsið hefur þegar náð að vinna hylli almennings á Íslandi. Í kjölfar fleiri heimsókna hljómsveita mun hróður Hörpu án efa einnig vaxa erlendis. Harpa er heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á fyrsta starfsári hljómsveitarinnar í Hörpu varð rúmlega 60% aukning á áskriftum. Með Hörpu hefur orðið sannkölluð bylting í starfsumhverfi hljómsveitarinnar. Sinfóníuhljómsveitin var stofnuð árið 1950 og fyrstu árin hélt hún tónleika í Þjóðleikhúsinu. Árið 1961 flutti hún í Háskólabíó, þar sem hún lék í bíósal í hálfa öld, eða þar til í apríl 2011 að hún flutti í Hörpu. Ný heimkynni gera það að verkum að hljómsveitin hefur möguleika á að vaxa og dafna. Nú þegar má heyra mun á leik hennar. Hljómburðurinn í Eldborg gerir miklar kröfur til hljóðfæraleikara. Þar heyrist allt. Næstu ár verða hiklaust afar þroskandi fyrir hljómsveitina og óhætt að fullyrða að hún muni launa þjóð sinni ríkulega.Mannlegur kraftur Það kallaði á heilmikið hugrekki af stjórnvöldum, sérstaklega af hálfu núverandi menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur, og þáverandi borgarstjóra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, að taka þá umdeildu ákvörðun að ljúka við bygginguna. Það er alþjóðlegt fyrirbæri að stjórnmálamenn gæta sín á að vera ekki of tengdir menningunni af ótta við að þeir verði spyrtir saman við „fámenna menningarelítu". Sá ótti er hins vegar byggður á misskilningi því menning og listir eru ekki fyrir fáa útvalda heldur mannlegur kraftur í allra þágu. Það er mikil lífsreynsla fyrir samfélag að upplifa hrun eða áfall. Það kemur á heilmiklu tilfinningaróti þar sem ótti, hræðsla, óvissa, reiði og sorg skiptast á. Á slíkum stundum leita manneskjurnar eftir einhverju sem hjálpar. Tónlistin er tungumál tilfinninganna. Allir þekkja það hvernig lítið lag getur breytt líðan okkar, tekið okkur aftur á vit minninga og laðað fram ólíkar tilfinningar. Þetta upplifðu meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands sterkt þegar hljómsveitin varð að aflýsa þriggja vikna tónleikaferð til Japans haustið 2008 í kjölfar hrunsins. Í stað þess að kasta fyrir róða vinnu við að æfa upp sinfóníur Sibelíusar lék hún þær fyrir opnu húsi í Háskólabíói. Á þá tónleika streymdi fólk sem hafði aldrei áður komið á tónleika hljómsveitarinnar. Það kom með ungbörn í fanginu, hélt utan um hvert annað, sat saman og hlustaði, upplifði og fann til í gegnum tónlistina. Þetta sama reyndu tónlistarmenn í Noregi í kjölfar fjöldamorðanna í Útey í júlí 2011. Þá voru sinfóníuhljómsveitir og tónlistarmenn kallaðir úr sumarfríum, líkt og hjálparsveitir, til að spila fyrir þjóð sína sem var í sárum.Tilfinningaþroski Þessi viðbrögð sýna áþreifanlega að tónlistin nærist ekki á sjálfri sér fyrir sjálfa sig. Tónlistin er sprottin af sammannlegri þörf. Því má segja að það lýsi tilfinningaþroska hjá þjóðinni að Harpa varð að veruleika og reis upp úr rjúkandi rústum efnahagshrunsins. Húsið og sú starfsemi sem það hýsir mun halda áfram að lýsa upp íslenskt menningarlíf um langa framtíð og auðga þannig líf okkar með þeim verðmætum sem ekkert fær grandað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar