
Endurteknar rangfærslur um erfðabreytt matvæli
Sandra fjallar nú í annað skipti um niðurstöður franskra vísindamanna sem, undir forystu Gilles-Eric Séralini, töldu sig sýna að neysla á erfðabreyttum maís gæti valdið bæði æxlismyndun og ótímabærum dauðsföllum í rottum.
Í þessari nýjustu grein sinni segir Sandra „[f]ranska rannsóknin sem Séralini o.fl. gerðu komst að því að taka hefði átt niðurstöður tilrauna Monsanto um eitrunaráhrif mun alvarlegar" og kallar rannsóknina „vakningu til stjórnvalda og eftirlitsaðila allra landa".
Gallinn er hins vegar sá að franska rannsóknin komst ekki að neinu, um það eru flestir sammála, m.a. eftirlitsaðilar fjölmargra landa. Það er nefnilega þannig að óháð því hvað fólki finnst um tölfræði skiptir hún máli í vísindum og í því tilfelli sem hér um ræðir var tilraunauppsetning og tölfræðileg úrvinnsla með þeim hætti að niðurstöðurnar styðja hvorki ályktanir Séralini né hræðsluáróður Söndru.
Ómarktækt
Söndru verður tíðrætt um „líftækniiðnaðinn" í greinum sínum, og má ljóst vera að tilgangurinn er að gera þá sem ekki deila skoðunum hennar tortryggilega í augum lesenda. Í grein sinni segir Sandra „[l]íftækniiðnaðurinn brást hart við frönsku rannsókninni" og „[h]ið sama gerir gengi nokkurra íslenskra vísindamanna sem auðsjáanlega telja það atvinnu- og fjárhagslegum hagsmunum sínum fyrir bestu".
Dylgjur af þessu tagi dæma sig sjálfar. En ef málið væri nú svo einfalt að líftækniiðnaðurinn væri hér að verja hagsmuni sína í samstarfi við „gengi nokkurra íslenskra vísindamanna" ætti Söndru að reynast það létt verk að fletta ofan af samsærinu. Mergur málsins er hins vegar sá að mjög fáir hafa tekið til varna fyrir rannsókn Séralini, ef frá eru taldir aðilar sem hafa þá bjargföstu og jafnframt óstaðfestu trú að erfðabreytt matvæli séu stórhættuleg.
Fjölmargar evrópskar stofnanir á vegum stjórnvalda hafa sent frá sér umsagnir um rannsókn Séralini og það er fróðlegt að sjá hvort umsagnir þeirra séu samhljóða skoðunum Söndru.
Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) segir um rannsókn Séralini að hún sé „ófullnægjandi hvað varðar tilraunaskipulag, greiningu og birtingu niðurstaðna". Bundesinstitut für Risikobewertung (BfR) í Þýskalandi segir að niðurstöður rannsóknarinnar styðji ekki ályktanir Séralini „vegna galla í tilraunauppsetningu…".
Danska matvælastofnunin kemst að þeirri niðurstöðu að ómögulegt sé að draga ályktanir um áhrif erfðabreytinga á heilsu byggt á grein Séralini sem þeir segja af „litlum faglegum gæðum".
ANSES og HCB (Haut Conseil des biotechnologies) fóru yfir málið fyrir frönsk stjórnvöld og niðurstöðurnar voru þær að tilraunauppsetning væri röng, lýsing niðurstaðna ófullnægjandi, ályktanir ekki rökstuddar og því ekki ástæða til að endurskoða áhættumat á umræddum maís (ofangreindar skýrslur má nálgast hér http://www.efsa.europa.eu/en/efsajournal/pub/2986.htm). Niðurstöður fjölmargra annarra eftirlitsstofnana eru sambærilegar.
Sandra hefur áður gefið í skyn að EFSA hafi óeðlileg tengsl við líftækniiðnaðinn og sé þ.a.l. ekki marktæk í umræðunni, en mikill er máttur líftækniiðnaðarins ef hann hefur tangarhald á öllum þeim stofnunum sem lýst hafa rannsókn Séralini ómarktæka. Samdóma álit þessara opinberu aðila og fjölmargra vísindamanna er einfaldlega að rannsóknin sem um ræðir sé ómarktæk og veiti engar nýjar upplýsingar um áhrif erfðabreyttra matvæla á heilsu.
Afneitunariðnaðurinn
Eftir því sem reynslan af nýtingu erfðatækni í landbúnaði og matvælaframleiðslu eykst kemur betur og betur í ljós að erfðatæknin er ekki varhugaverð sem slík. Þetta er meðal annars niðurstaða nýlegrar skýrslu Evrópusambandsins (http://ec.europa.eu/research/biosociety/pdf/a_decade_of_eu-funded_gmo_research.pdf).
En þrátt fyrir umfangsmiklar rannsóknir og fjölmarga augljósa kosti erfðatækninnar fer mikið fyrir hópi fólks sem grípur sérhvert tækifæri til að halda fram þeirri skoðun að erfðatæknin sé stórhættuleg og að notkun hennar eigi jafnvel að banna með öllu, sér í lagi notkun hennar í landbúnaði og matvælaframleiðslu.
Þessar kröfur byggja þó ekki á vísindum heldur áróðri og endurteknum rangfærslum óháð vísindaniðurstöðum.
Málflutningurinn líkist þannig helst málflutningi afneitunarsinna sem mikið hefur borið á í umræðunni um loftslagsmál. Það er vonandi að íslensk stjórnvöld sjái í gegnum þennan áróður og styðjist við niðurstöður vísindanna í þessu máli rétt eins og þau hafa ákveðið að gera í loftslagsmálunum.
Skoðun

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar

Skjólveggur af körlum og ungum mönnum
Ólafur Elínarson skrifar

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar