Svindl í Meistaradeildinni á Englandi 4. febrúar 2013 12:00
Hagræðing úrslita knattspyrnuleikja er mun stærra vandamál en áður var haldið segir Europol sem hefur verið að rannsaka slík mál undanfarna átján mánuði. Í nýjum gögnum frá Europol kemur meðal annars fram að úrslitum leiks í Meistaradeildinni, sem spilaður var á Englandi, hafi verið hagrætt. Europol vildi ekki gefa upp um hvaða leik væri að ræða en sagði að hann hefði farið fram á síðustu þrem til fjórum árum. Europol getur ekki greint nánar frá málinu þar sem það er enn í rannsókn. Samkvæmt upplýsingum evrópsku lögreglunnar, Europol, þá hefur úrslitum leikja á HM og EM einnig verið hagrætt. Í Þýskalandi veðjuðu glæpamenn tæpum 14 milljónum punda á leiki þar sem búið var að sjá til þess að úrslitin yrðu "rétt". Þeir eiga að hafa grætt um 7 milljónir punda á þessum leikjum. "Það eru skipulögð glæpasamtök í Asíu sem standa á bak við þetta svindl. Þau vinna svo með glæpasamtökum í Evrópu. Þetta er stærsta rannsókn sinnar tegundar og sýnir hversu stórt þetta vandamál er. Við erum búnir að afhjúpa risavaxna glæpastarfsemi," segir Rob Wainwright, yfirmaður Europol. Europol segir að hagræðing úrslita hafi átt sér stað í 15 löndum og þegar er búið að handtaka 50 manns vegna málsins. Europol er alls að rannsaka 380 knattspyrnuleiki.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira