Fótbolti

Steinar Örn Ingimundarson látinn

Steinar Örn Ingimundarson.
Steinar Örn Ingimundarson. Mynd / Heimasíða Keflavíkur
Steinar Örn Ingimundarson er látinn, aðeins 44 ára að aldri. Hann átti að baki langan knattspyrnuferil, bæði sem leikmaður og þjálfari.

Steinar lék með KR, Leiftri og Víði í efstu deild á sínum tíma en einnig með Þrótti og Fjölni í neðri deildunum. Hann lék einnig nokkra leiki með U-17 liði Íslands.

Hann starfaði einnig sem þjálfari hjá Fjölni, Víði og síðast sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Hann hætti með liðið árið 2011 vegna veikinda sinna.

Vísir sendir fjölskyldu og aðstandendum samúðarkveðjur vegna fráfalls Steinars Arnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×