Fótbolti

KR hefndi fyrir tapið á Reykjavíkurmótinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bjarni skoraði úr vítaspyrnu í kvöld.
Bjarni skoraði úr vítaspyrnu í kvöld. Mynd/Valli
KR vann í kvöld sigur á Leikni, 3-1, í Lengjubikarnum í Egilshöll. Þar með hefndi KR fyrir tapið í úrslitaleik liðanna í Reykjavíkurmótinu fyrr í vetur.

Færyeingurinn Dánjal á Lakjuni kom Leikni yfir strax á 2. mínútu en Bjarni Guðjónsson jafnaði metin fyrir KR með marki úr vítaspyrnu á 16. mínútu.

Aðeins fimm mínútum síðar kom Gary Martin KR-ingum yfir í leiknum og Þorsteinn Ragnarsson innsiglaði sigurinn með marki á 71. mínútu.

Bæði lið voru með fullt hús stiga í 3. riðli Lengjubikarsins fyrir leikinn í kvöld. KR er á toppnum með tólf stig en Leiknir, sem á einn leik til góða, er með sex stig í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×