Íslenski boltinn

Stelpurnar tryggðu sér níunda sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið vann sannfærandi 4-1 sigur á Ungverjum í leiknum um níunda sætið Algarve mótinu í fótbolta í dag. Íslenska liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu en hafði mikla yfirburði í leiknum í dag.

Íslensku stelpurnar náðu að rífa sig up og enda mótið á sigri en liðið hafði tapað fyrir Bandaríkjunum (0-3), Svíþjóð (1-6) og Kína (0-1) í fyrri leikjum sínum á þessu sterka árlega æfingamóti.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, gerði talsverðar breytingar á liðinu og þá einkum hvar leikmenn voru að spila á vellinum.

Sigurður Ragnar setti meðal annars Rakel Hönnudóttur í framlínuna og hún þakkað fyrir sig með því að skora annað mark íslenska liðsins á 55. mínútu. Rakel er var búin að vera hættuleg áður en hún skoraði og skoraði meðal annars annað mark sem var dæmt af.

Sara Björk Gunnarsdóttir kom Íslandi í 1-0 með skalla á 10. mínútu eftir aukaspyrnu frá Glódísi Perlu Viggósdóttur.

Katrín Ómarsdóttir skoraði þriðja markið á 80. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu en Elín Metta Jensen fékk aukspyrnuna. Sjö mínútum seinna minnkuðu Ungverjar muninn úr vítaspyrnu.

Sandra María Jessen innsiglaði síðan sigurinn í blálokin eftir stungusendingu frá Elíu Mettu Jensen og stuttu síðar var flautað til leiksloka.

Fanndís Friðriksdóttir, Sif Atladóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir voru ekki á skýrslu í dag og missti því Guðbjörg af öllu mótinu vegna veikindanna sem hún varð fyrir í síðasta mánuði.



Lið Íslands í leiknum á móti Ungverjalandi í dag:



Markvörður: Þóra Helgadóttir (83., Birna Kristjánsdóttir)

Hægri bakvörður: Elísa Viðarsdóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Glódís Perla Viggósdóttir

Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir (46., Hallbera Guðný Gísladóttir)

Tengiliðir: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir (60., Edda Garðsdóttir) og Dagný Brynjarsdóttir (70., Elín Metta Jensen)

Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir (70., Sandra María Jessen)

Vinstri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir (57., Katrín Ómarsdóttir)

Sóknartengiliður: Sara Björk Gunnarsdóttir

Framherji: Rakel Hönnudóttir

Mörkin:

1-0 Sara Björk Gunnarsdóttir (10.)

2-0 Rakel Hönnudóttir (55.)

3-0 Katrín Ómarsdóttir (80.)

3-1 víti (87.)

4-1 Sandra María Jessen (90.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×