Fótbolti

Valur áfram í Lengjubikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kolbeinn Kárason í leik með Val.
Kolbeinn Kárason í leik með Val. Mynd/Vilhelm
Valur gulltryggði sæti sitt í fjórðungsúrslitum Lengjubikarsins með 2-0 sigri á KA í kvöld. Þá gerðu Leiknir og Þór 2-2 jafntefli.

Valur er nú með fimmtán stig í 2. riðli keppninnar og er einu stigi á eftir Breiðabliki, auk þess að eiga leik til góða. Kolbeinn Kárason og Stefán Guðlaugsson skoruðu mörk Vals í kvöld.

Víkingur R. og Selfoss eiga enn möguleika á að komast áfram úr 2. riðli en þrír leikir fara fram á föstudagskvöldið.

Leiknir og Þór eru bæði úr leik en liðin mættust í 3. riðli keppninar í kvöld. Þór er í þriðja sæti riðilsins með ellefu stig en Leiknir í sjötta sæti með sjö stig.

Víkingur Ó., FH og Fylkir eru örugg áfram úr 1. riðli og þá voru KR og Stjarnan búin að tryggja sig áfram úr 3. riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×