Mourinho hrósar þýskum fótbolta 30. apríl 2013 10:45
Fyrri farmiðinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu verður gefinn út í kvöld en þá tekur Real Madrid á móti Dortmund. Það er verk að vinna hjá spænska stórliðinu eftir að hafa steinlegið, 4-1, í fyrri leiknum í Þýskalandi. Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, hrósaði þýsku liðunum fyrir leikinn í kvöld. "Það kemur mér ekki á óvart að Dortmund sé komið í þessa stöðu því ég sagði í upphafi vetrar að liðið væri eitt það sigurstranglegasta. Það er búið að byggja upp frábært lið þarna og umgjörðin í kringum liðið og þjálfarann til fyrirmyndar," sagði Mourinho. "Bæði þýsku liðin í undanúrslitunum eru frábær sem og landslið Þjóðverja. Það er komin upp frábær kynslóð knattspyrnumanna í Þýskalandi og liðið er líklegt til afreka á næsta HM." Mourinho var eðlilega ekki nógu ánægður með sitt lið í fyrri leiknum. Sagði að sínir menn hefðu spilað eins og þetta hefði verið vináttuleikur. Þeir hefðu þess utan verið allt of linir við Robert Lewandowski sem skoraði öll fjögur mörk Dortmund í leiknum. "Við vorum barnalegir í því hvernig við vörðumst Lewandowski. Við brutum aldrei á honum. Það var búið að brjóta fimm sinnum á Ronaldo í upphafi leiksins. Hvernig er hægt að spila í 90 mínútur og ekki brjóta einu sinni á manni sem skorar fjögur mörk?" Leikurinn hefst klukkan 18.45 og er í beinni á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18.00.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira