Dundee United síðast til að leggja Barca tvisvar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. maí 2013 20:49 Lið Dundee sem tókst hið ótrúlega á Nou Camp árið 1987. Nordicphotos/Getty
26 ár eru síðan Barcelona tapaði bæði heima- og útileik sínum í útsláttarkeppni í Evrópukeppni í knattspyrnu. Andstæðingurinn var úr ólíklegustu átt, Skotlandi. Barcelona mætti Dundee United í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða, forvera Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Dundee United vann afar óvæntan 1-0 sigur í fyrri leiknum á Tannadice og átti erfitt verkefni fyrir höndum í Barcelona. Terry Venables var þá þjálfari Barcelona og meðal leikmanna liðsins var Englendingurinn Gary Lineker sem tæpu ári fyrr varð markahæsti leikmaðurinn á HM í Mexíkó með sex mörk. Ramon Maria Calderé kom Barcelona í 1-0 í fyrri hálfleik og jafnaði þar með metin í einvíginu. Skallamörk frá John Clark og Iain Ferguson tryggðu Dundee United ótrúlegan sigur. Ekkert lið hafði leikið afrek Dundee United eftir í 26 ár fyrr en Bayern gerði það í kvöld. Dundee United fór alla leið í úrslitaleikinn þar sem liðið tapaði gegn IFK Gautaborg. Þremur árum síðar mættu FH-ingar Dundee United í fyrstu Evrópuleikjum sínum. Dundee vann 3-1 sigur í fyrri leiknum í Kaplakrika en FH vann 2-0 sigur í síðari leiknum í Skotlandi. Barcelona-banarnir skriðu því áfram gegn FH með útivallarmörkum sínum.
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Bayern slátraði Barcelona og mætir Dortmund í úrslitum Bayern München vann 3-0 sigur á Barcelona í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Bæjarar unnu spænska risann 7-0 samanlagt í tveimur leikjum. 1. maí 2013 12:51 Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Sjá meira
Bayern slátraði Barcelona og mætir Dortmund í úrslitum Bayern München vann 3-0 sigur á Barcelona í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Bæjarar unnu spænska risann 7-0 samanlagt í tveimur leikjum. 1. maí 2013 12:51