Fótbolti

Fjölnir stal stigi á Akureyri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Bjarni er væntanlega ekki sáttur við jöfnunarmarkið undir lokin.
Bjarni er væntanlega ekki sáttur við jöfnunarmarkið undir lokin.

Fjölnir sótti stig á Akureyri þegar liðið sótti KA heim í 1. deild karla í fótbolta í Atli Már Þorbergsson jafnaði metin á síðustu mínútum leiksins.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en Mads Rosenberg kom KA yfir á 60. mínútu og virtist það ætla að duga KA til sigurs þar til Atli Már skoraði á 89. mínútu og jafntefli því staðreynd.

Bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferð deildarinnar og eru því á toppi deildarinnar með fjögur stig þegar enn á eftir að leika þrjá leiki í annarri umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×