Blikakonur áfram á sigurbraut í Pepsi-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. maí 2013 20:04 Mynd/Daníel
Breiðablik er með fullt hús eftir þrjár umferðir í Pepsi-deild kvenna eftir 3-0 útisigur á nýliðum Þróttar í fyrsta leik þriðju umferðarinnar sem fór fram á Gervigrasvellinum í Laugardal í kvöld. Umferðin klárast síðan á morgun. Fyrirliðinn Greta Mjöll Samúelsdóttir kom Blikum á bragðið með fyrsta markinu á 7. mínútu og í seinni hálfleiknum bættu svo þær Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Björk Gunnarsdóttir við mörkum. Allar þrjár hafa nú skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjunum. Það vakti athygli að Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, sem tryggði Breiðablik 1-0 sigur á Val með frábæru marki í 2. umferðinni, var á bekknum í leiknum í kvöld alveg eins og landsliðskonan Rakel Hönnudóttir. Það er greinilega mikil breidd í Blikaliðinu í sumar og mikil samkeppni um sæti í liðinu. Breiðablik vann 4-3 endurkomusigur á HK/Víkingi í 1. umferðinni og fylgdi því eftir með að vinna 1-0 sigur á Val í stórleik síðustu umferðar. Stjarnan og Selfoss unnu einnig tvo fyrstu leiki sína í Pepsi-deildinni í ár en eiga ekki leik fyrr en á morgun. Selfoss fær þá Aftureldingu í heimsókn en Stjarnan tekur á móti FH. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af úrslit.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli Handbolti „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Lech Poznan að kaupa Gísla: Mættur í læknisskoðun Fótbolti Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum „Ég get ekki beðið að koma aftur til Íslands“ Ef launin væru svo há hefði ég gert fimm ára samning Verður áfram í grænu næsta sumar Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Sjá meira