Tónlist

Tónleikum Dionne Warwick frestað

Tónleikum Dionne Warwick hefur verið frestað til 10. júlí.
Tónleikum Dionne Warwick hefur verið frestað til 10. júlí.

Af óviðráðanlegum orsökum verða tónleikar bandarísku söngkonunnar Dionne Warwick, sem fyrirhugaðir voru í Hörpu 19. júní, færðir til 10. júlí.

Aðstandendur tónleikanna og söngkonan sjálf biðja tónleikagesti velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Þeir sem ekki geta sótt tónleikana þann 10. júlí geta fengið endurgreiðslu í miðasölu Hörpu.

Miðar á tónleikana eru nánast uppseldir en nokkur sæti eru laus á efstu svölum. Einnig verða seldir miðar í sæti samsíða sviðinu og fyrir aftan það.

Þeir sem telja sig hafa misst af miðum á tónleikana eru því hvattir til að fylgjast vel með á miðasöluvef Hörpu og á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×