Fótbolti

Sigurður Ragnar áfram undir feldi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Ragnar hefur komið kvennalandsliðsinu í tvær lokakeppnir Evrópumótsins í röð.
Sigurður Ragnar hefur komið kvennalandsliðsinu í tvær lokakeppnir Evrópumótsins í röð. Mynd/ÓskarÓ
Sigurður Ragnar Eyjólfsson ætlar að taka sér tíma til að íhuga hvort hann ætli að halda áfram í starfi sem landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu.

Sigurður staðfesti í samtali við Vísi að hann hefði hitt Þóri Hákonarson, framkvæmdastjóra Knattspyrnusambands Íslands, í dag og þeir rætt málin. Stjórn KSÍ veitti Þóri á dögunum umboð til þess að semja á nýjan leik við Sigurð Ragnar.

Sigurður Ragnar stýrði íslenska landsliðinu í átta liða úrslit á Evrópumótinu í Svíþjóð fyrr í sumar.  Hann segist ætla að flýta sér hægt að taka ákvörðunina og reiknar með að gera það í að minnsta kosti viku til viðbótar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×