Viðskipti erlent

Tvær nýjar tegundir af Iphone

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Tvær nýjar tegundir af Iphone verða frumsýndar á morgun
Tvær nýjar tegundir af Iphone verða frumsýndar á morgun
Sérfræðingar velta sér upp úr nýjum tegundum af Iphone sem Apple frumsýnir á morgun.

Fyrir utan almenna forvitni um útlit og virkni símtækjanna er talað um að þessi frumsýning skipti sköpum fyrir fyrirtækið.

Sérfræðingur sem Dailymail spáir því að sama hvernig útlitið verði þá muni stýrikerfið í símanum gera símann mjög frábrugðinn þeim sem Apple-notendur hafa vanist hingað til. Því er mögulegt að Apple-notendur geti átt erfitt með að venjast nýja kerfinu.  

The New York Times ræðir einnig við símasérfræðinga sem  spá því að nýju símarnir verði ódýrari og þannig nái Apple að komast inn á nýjan markað. Það er sá fjöldi fólks sem langar í Iphone en hefur ekki haft efni á því hingað til, eins og til dæmis í Kína.  

Getgáturnar eru ýmis konar en fátt fast í hendi enda hefur ríkt mikil leynd í höfuðstöðvum Apple yfir nýju símtækjunum sem frumsýnd verða á morgun.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×