Tónlist

Pink kona ársins

Bandaríska söngkonan Pink hefur verið valin kona ársins að mati Billboard-tímaritsins. Nýjasta plata hennar, The Truth About Love komst í fyrsta sæti Billboard-listans á árinu.

Pink sagði í yfirlýsingu að árið hjá henni hefði verið ótrúlegt og sagðist vera virkilega þakklát aðdáendum sínum og einnig öllu því hæfileikaríka fólki sem hún vann með á árinu. Pink sem er 34 ára gömul skaust upp á stjörnuhimininn árið 2000.

Smáskífulögin af nýjustu plötu hennar, Blow Me (One Last Kiss), Try, og Just Give Me a Reason komust öll í toppsæti Billboard-listans á árinu. Pink heitir réttu nafni Alecia Moore og hefur selt meira en 40 milljónir platna á ferlinum og yfir 20 milljónir laga á rafrænu formi. Samkvæmt ritstjóra Billboard-tímaritsins gáfu sölutölur, sem gefnar voru út á miðju árinu til kynna að Pink hafði selt flestar plötur á því tímabili.

Söngkonan mun fá viðurkenningu á árlegu Billboard-hátíðinni sem haldin verður í New York í desember. Katy Perry fékk viðurkenninguna í fyrra en áður höfðu Beyonce og Taylor Swift einnig hlotið viðurkenninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×