Viðskipti erlent

Nýtt app fyrir tónlistarunnendur - Seenth.is

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Seenth.is, er nýtt tónlistarapp.
Seenth.is, er nýtt tónlistarapp.
Nýtt app, Seenth.is, hjálpar tónlistaraðdáendum að finna það sem er nýjast og merkilegast frá uppáhalds tónlistarflytjendum sínum. Þetta kemur fram á síðunni Techcrunch.com.

Appið er komið á markað fyrir iOS stýrikerfið en Android útgáfan verður ekki tilbúin fyrr en í lok þessa árs.

Appið virkar þannig að það safnar saman helstu upplýsingum, meðal annars af Instagram, Twitter, YouTube og SoundCloud síðum tónlistarflytjenda. Notendur appsins skrá svo hverjum þeir vilja fylgjast með og þannig geta þeir alltaf fengið nýjustu upplýsingar frá tónlistarflytjendunum. Þannig geta þeir komist á snoðir um hvaða lag er líklegt til þess að verða vinsælt, áður en það slær í gegn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×