Íslenski boltinn

Aron Einar: Ég var kominn með svima á tímabili

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson fagnar í leikslok.
Aron Einar Gunnarsson fagnar í leikslok. Mynd/Valli
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, fór fyrir íslenska liðinu í 2-1 sigri á Albönum á Laugardalsvellinum í kvöld en með þessum sigri komst liðið upp í annað sætið í riðlinum.

"Þetta er ólýsanleg tilfinning. Ég er stoltur af strákunum og fyrir Íslands hönd. Þetta var æðislegur sigur og það er klassi að fá að vera partur af þessu liði," sagði Aron Einar Gunnarsson.

Íslenska liðið lenti undir eftir níu mínútna leik en kom enn á ný til baka og landaði þremur gríðarlega mikilvægum stigum

"Karakterinn í liðinu er á sínum stað og við vinnum gífurlega mikið í þessum leik. Við erum að hlaupa mikið og ég var kominn með svima á tímabili. Sem betur fer erum við með flinka leikmenn sem geta haldið boltanum og leyft okkur hinum að anda á meðan," sagði Aron Einar í léttum tón.

Hann var mjög ánægður með leik íslenska liðsins í fyrri hálfleik en liðið gaf síðan aðeins eftir þegar leið á leikinn.

"Fyrri hálfleikurinn var flottur og þá vorum við velspilandi. Við héldum boltanum ekki nógu vel í seinni hálfleiknum. Þeir fengu samt ekki mörg færi og við áttum þennan sigur skilinn," sagði Aron Einar. Hann segir liðið hafa bætt sig mikið frá því á móti Sviss.

"Við verjumst betur sem lið í þessum leik en út í Sviss. Við vorum að passa upp á hvern annan. Þetta var flottur baráttusigur þar sem menn voru að hlaupa úr sér lungun," sagði Aron Einar.

"Ég var orðinn svolítið þreyttur á tímabili enda missti ég af nær öllu undirbúningstímabilinu. Það var svolítið erfitt fyrir mig að spila tvo leiki á stuttum tíma en ég er að komast í leikform og er sáttur með minn leik," sagði Aron.

Íslenska liðið er nú í frábærri stöðu í riðlinum en hvernig lítur landsliðsfyrirliðinn á framhaldið?

"Þetta er ekki búið því það eru tveir leikir eftir á móti Kýpur heima og Noregi úti. Við sögðum það fyrir þennan leik að allir þessir þrír leikir værui úrslitaleikir fyrir okkur. Við erum komnir upp í annað sætið í riðlinum og ætlum að halda því," sagði Aron Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×