Íslenski boltinn

Anna María byrjar á móti Sviss - Guðbjörg í markinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anna María Baldursdóttir (til vinstri) varð Íslandsmeistari með Stjörnunni á dögunum,
Anna María Baldursdóttir (til vinstri) varð Íslandsmeistari með Stjörnunni á dögunum, Mynd/Daníel
Freyr Alexandersson hefur tilkynnt fyrsta byrjunarlið sitt sem þjálfari kvennalandsliðsins en íslensku stelpurnar mæta Sviss á Laugardalsvellinum á eftir.

Freyr skellir Stjörnustelpunni Önnu Maríu Baldursdóttur inn í byrjunarliðið í sínum fyrsta alvöruleik en hún á aðeins að baki tvo A-landsleiki.

Sif Atladóttir er ekki leikfær og því utan hóps. Það þýðir að Katrín Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir spila saman í miðri vörninni.

Guðbjörg Gunnarsdóttir er áfram í marki íslenska liðsins en hún markmannsstöðuna af Þóru B. Helgadóttur þegar Þóra meiddist fyrir EM. Guðbjörg stóð sig frábærlega á EM og heldur sæti sínu.

Annars er þetta hefbundið nema að Hallbera Guðný Gísladóttir er komin mun framar á völlinn og bæði Ólína G. Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir eru komnar á hinn kantinn. Dóra María Lárusdóttir er líka inn á miðjunni í dag en ekki í bakverðinum eins og síðustu leikjum liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar.

Það er ekki pláss fyrir Fanndísi Friðriksdóttur, Hörpu Þorsteinsdóttur og Rakel Hönnudóttir í byrjunarliðinu og Katrín Ómarsdóttir er einnig á bekknum.



Byrjunarlið Íslands á móti Sviss:

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir

Hægri bakvörður: Anna María Baldursdóttir

Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Glódís Perla Viggósdóttir

Tengiliðir: Dagný Brynjarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir og Dóra María Lárusdóttir

Hægri kantur: Hólmfríður Magnúsdóttir

Vinstri kantur: Hallbera Guðný Gísladóttir

Framherji:  Margrét Lára Viðarsdóttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×