Íslenski boltinn

Margrét Lára: Alltaf aukaspenningur fyrir fyrsta leik í nýrri keppni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir. Mynd/Valli
Margrét Lára Viðarsdóttir og félagar hennar í íslenska kvennalandsliðinu verða í sviðljósinu í Laugardalnum í kvöld þegar liðið mætir Sviss í fyrsta leik sínum í undankeppni HM 2015.

Margrét Lára Viðarsdóttir er ánægð með framgöngu Freys Alexanderssonar á fyrstu æfingunum en hann mun stýra liðinu í fyrsta sinn í kvöld.

„Þetta lítur mjög vel út og ég held að hann sé bara að standa sig nokkuð vel. Með nýju fólki koma alltaf nýjar áherslur en það er samt ekki verið að hrófla neitt rosalega mikið við hlutunum," segir Margrét Lára Viðarsdóttir.

„Siggi (Sigurður Ragnar Eyjólfsson) gerði frábæra hluti með þetta lið og ég held að aðalmarkmiðið okkar sé að halda áfram að bæta okkur sem lið og sem einstaklingar í liðinu. Ég held að Freyr sé kominn til að aðstoða okkur með það," segir Margrét Lára.

„Það er alltaf aukaspenningur fyrir fyrsta leik í nýrri keppni. Við höfum ekki náð því áður að komast á HM og það er verðugt verkefni framundan," segir Margrét Lára.

Svissneska liðið vann 9-0 sigur á Serbíu um síðustu helgi og sóknarmenn liðsins eru skeinuhættir.

„Þetta eru stórar tölur. Við vitum það alveg að Sviss sé með frábært lið þótt að þær hafi ekki verið á EM í sumar. Þær eru lið sem eru á mikilli uppleið. Þær eru með þýskan þjálfara sem er þekkt í þessum bransa og veit sínu viti. Þær eru rosalega flottar og þá sérstaklega framlínan hjá þeim. Þær eru með heimsklassa leikmenn í öllum þessum stöðum framarlega á vellinum," segir Margrét Lára.

Margrét Lára vill sjá marga áhorfendur á leiknum í kvöld sem hefst klukkan 18.30 á Laugardalsvellinum.

„Ég vona að sem flestir komi á leikinn og að allir sem ætla að mæta á karlaleikinn komi á okkar leik því þá verður fullur völlur og voðalega gaman," segir Margrét Lára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×