Íslenski boltinn

Hulda Ósk afgreiddi Rúmeníu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hulda Ósk Jónsdóttir.
Hulda Ósk Jónsdóttir. Mynd/Hanna Dóra
Hulda Ósk Jónsdóttir var hetja íslenska 17 ára landsliðsins í fótbolta í Rúmeníu í dag þegar hún skoraði bæði mörk í 2-1 sigri á heimastúlkum. Þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni EM.

Það var ekkert mark skorað í fyrri hálfleiknum en heimastúlkur komust yfir eftir átta mínútna leik í seinni hálfleik.

Hulda Ósk Jónsdóttir, sem spilar með Völsungi og kemur frá Laxamýri, tók þá til sinna ráða og setti tvö mörk, það fyrra á 57. mínútu og það síðara þegar níu mínútur lifðu eftir af venjulegum leiktíma.  Blikinn Esther Rós Arnarsdóttir lagði upp bæði mörkin.

Hulda Ósk Jónsdóttir hefur nú skorað 5 mörk í 10 leikjum með íslenska 17 ára landsliðinu.

Spánn vann Írland 2-1 í hinum leik riðilsins í dag en íslensku stelpurnar mæta Írlandi á miðvikudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×